Gervigreind í kennslu: Ábyrg og markviss notkun

Image

Notkun gervigreindar í háskólastarfi þróast hratt og oft erfitt að átta sig á hvað telst best í hvert sinn. Reglur og viðmið eru í sífelldri þróun, ný tól koma stöðugt fram og upplýsingarnar sem liggja fyrir í dag geta verið úreltar á morgun. Því er mikilvægt að fylgjast með þróuninni og taka upplýstar, faglegar og siðferðilegar ákvarðanir þegar gervigreind er nýtt í kennslu og námsmati.

Á þessum síðum má finna gagnlegar leiðbeiningar, tengla og ráðleggingar sem styðja við markvissa og ábyrga nýtingu gervigreindar í starfi kennara  – hvort sem er við undirbúning kennslu, í kennslu eða við mat á námsárangri.

Hafðu samband

Ef þú hefur spurningar um notkun gervigreindar í námi eða kennslu við Háskóla Íslands, getur þú haft samband við:

Kennslumiðstöð HÍ: kennslumidstod@hi.is
Persónuverndarfulltrúi HÍ: Magnús Jökull Sigurjónsson – mjs[at]hi.is
Tækniaðstoð / Upplýsingatæknisvið (UTS): help@hi.is