Efling náms með aðstoð gervigreindar

Nýttu gervigreind til að þróa og efla námskeiðið þitt
Gervigreindartól á borð við ChatGPT, Copilot og sambærileg kerfi eru að móta nýja möguleika í háskólakennslu. Þau bjóða upp á margvíslega leiði til að styðja við nám og kennslu með skilvirkum hætti. Með markvissri og ábyrgar samþættingu slíkra tóla er hægt að spara tíma, aðlaga kennsluhætti að fjölbreyttum þörfum nemenda og skapa lifandi námsumhverfi.
Með markvissri notkun á gervigreind er hægt að efla gagnrýna hugsun, sköpunargáfu og þátttöku nemenda.
Kennslumiðstöð Háskóla Íslands veitir stuðning – þú getur haft samband í gegnum kennslumidstod@hi.is til að bóka ráðgjöf eða fá upplýsingar um námskeið og vinnustofur.
Sköpun og þróun námsefnis með aðstoð gervigreindar
Gervigreind getur stutt við kennara við að þróa námsefni sem byggir á námsmarkmiðum og kennsluaðferðum hvers og eins:
- Skipulag kennslu: Búðu til uppkast að fyrirlestrum, verkefnum, vinnustofum eða námskeiðslýsingum til að stytta undirbúningsferli.
- Hugmyndavinna og verkefni: Hannaðu dæmi, spurningar, verkefni eða raunverulegar aðstæður sem tengjast námsefninu.
- Margmiðlunarefni: Nýttu tól til að búa til myndir, hljóðskrár eða myndskeið sem gera kennsluefnið fjölbreyttara og meira aðlaðandi.
Prófaðu og ígrundaðu efni áður en kennslan hefst
Það getur reynst erfitt að sjá fyrir hvernig nýtt námskeið eða efni mun nýtast í framkvæmd. Með hjálp gervigreindar er mögulegt að prófa viðfangsefni áður en þau eru kennd:
- Gervigreind getur hermt eftir ólíkum tegundum nemenda og spáð fyrir um hugsanlegar spurningar, villur eða rangtúlkanir.
- Þú getur óskað eftir svörum sem endurspegla sjónarhorn nýnema, nemenda með lesblindu eða þeirra sem eiga erfitt með námsefnið – og þannig betrumbætt kennsluáætlunina.
- Þó ber að hafa í huga að gervigreind getur ekki að fullu endurskapað raunveruleg viðbrögð nemenda, s.s. tilfinningaleg svör, félagslega dýnamík eða skapandi innsæi..
Þetta er ígrundunarferli. prófaðu efnið, greindu viðbrögð gervigreindar, gerðu breytingar og prófaðu aftur. Reyndu síðan að innleiða breytingarnar í kennslu – jafnvel í litlu mæli – og fylgstu með viðbrögðum nemenda.
Dæmi um notkun í kennsluþróun:
-
Fáðu gervigreind til að svara verkefni „eins og meistaranemi með lesblindu“ eða „eins og nýnemi í eðlisfræði“.
-
Spyrðu hvort leiðbeiningar séu skýrar eða hvort einhverjir þættir í verkefninu geti valdið óvissu eða hindrunum fyrir nemendur.
Veittu einstaklingsmiðaða endurgjöf
Gervigreind getur gert endurgjöf skilvirkari og nákvæmari – án þess að draga úr persónulegum tengslum.
-
Greining verkefna: Nýttu gervigreind til að fara yfir verkefni nemenda, draga fram styrkleika og benda á atriði sem má bæta.
-
Styttu þann tíma sem fer í leiðréttingar: Búðu til gagnlegar athugasemdir sem hægt er að endurnýta, t.d. þegar margir nemendur gera sömu mistökin.
-
Hannaðu æfingar og sjálfspróf: Gervigreind getur aðstoðað við að búa til æfingar eða sjálfsmat sem henta þörfum einstakra nemenda.
⚠️ Athugið: Þó gervigreind geti stutt við greiningu og orðalag, ber kennara alltaf að fara yfir og laga endurgjöfina sjálfur til að tryggja faglega ábyrgð og viðhalda tengslum við nemendur.

Styðjið nemendur í notkun AI
Kennarar geta hjálpað nemendum að nota gervigreind á uppbyggilegan og siðferðilega ábyrgan hátt.
- Styðjið hugmyndavinnu
Hvetjið nemendur til að nýta gervigreind sem tæki til að fá hugmyndir eða hefja verkefnavinnu– ekki sem fullnaðarafurð, heldur sem hluta af skapandi vinnuferli. - Kennið gagnrýna greiningu
Sýnið nemendum hvernig á að meta gæði, áreiðanleika og hlutdrægni í úttaki gervigreinda. Kennið þeim að bera kennsl á rangfærslur og treysta á traustar heimildir í stað óstaðfestra upplýsinga. - Gerið námsefni aðgengilegt
Gervigreindartól geta eflt aðgengi að námi fyrir fjölbreyttan hóp nemenda, m.a. með því að umbreyta texta í hljóðform, einfalda flókið efni eða þýða á milli tungumála.

Fjallið um siðferðileg og fagleg viðmið í tengslum við notkun gervigreindar
Innleiðing gervigreindar í háskólanám kallar á skýrar reglur, gagnsæi og virka umræðu um faglegar og siðferðilegar forsendur náms.
- Skilgreinið viðmið og reglur:
Takið skýrt fram í námskeiðslýsingu og matsviðmiðum hvaða notkun gervigreindar er heimil og hvenær hún telst brjóta gegn náms- eða siðareglum. - Stuðlið að opnu samtali:
Ræðið siðferðileg álitaefni sem tengjast notkun gervigreindar – bæði í samhengi námsins og í samfélaginu í heild. Slík umræða eflir meðvitund, gagnrýna hugsun og ábyrgð nemenda. - Fylgist með mögulegri misnotkun:
Ef ástæða þykir til er hægt að beita greiningartólum til að meta notkun gervigreindar, en slík úrræði ættu ávallt að vera notuð af varfærni. Áherslan skal fyrst og fremst vera á að skapa menningu sem byggir á akademískum heiðarleika og sjálfstæðri vinnu nemenda
