Hvernig á að skrifa markvissar og gagnlegar skipanir fyrir gervigreind

Þegar þú notar gervigreind eins og Copilot eða ChatGPT skiptir miklu máli hvernig þú orðar beiðnina. Góð kvaðning (eða „prompt“) hjálpar spunagreindartólinu að skila betri og markvissari niðurstöðum.
Hér eru nokkur einföld ráð:
Vertu skýr og nákvæm(ur)
- Slæm kvaðning: „Segðu mér frá sögunni.“
- Betri kvaðning: „Geturðu útskýrt helstu atburði í seinni heimsstyrjöldinni á einföldu máli fyrir nemendur á framhaldsskólastigi?“
Gefðu samhengi eða hlutverk
- Slæm kvaðning: „Þú ert háskólakennari sem ert að útskýra hugtakið ‘aðferðafræði’ fyrir nýnemum. Notaðu einfaldan orðaforða og gefðu dæmi.“
- Betri kvaðning (Skilgreindu stíl, tilgang eða lengd): „Skrifaðu stuttan kynningarpóst (100 orð) á íslensku til nemenda í nýju námskeiði um sjálfbærni.“
Prófaðu aftur og fínstilltu
Þú þarft ekki að ná „fullkominni“ kvaðningu í fyrstu tilraun. Það er eðlilegt að byrja vítt og þrengja svo spurninguna. Spurðu eftir útskýringum, einfaldari útgáfu, eða beindu spunagreindartólinu í aðra átt. Þetta samtal milli manns og tækis er það sem skilar árangri.
Viltu æfa þig?
Farðu inn á Copilot Prompt Gallery þar sem þú getur æft þig í að skrifa góðar kvaðningar og séð hvernig mismunandi nálganir hafa áhrif á svörin sem þú færð.