Örnám
Örnám
Örnám er stutt nám sem auðveldar fólki að bæta við sig þekkingu á afmörkuðu sviði. Námið er byggt upp eins og annað háskólanám og lýtur sömu gæðakröfum. Örnámi lýkur ekki með prófgráðu heldur fá nemendur staðfest með vottorði að námi sé lokið. Örnám er metið til ECTS-eininga sem í mörgum tilvikum er hægt að nýta í öðru námi sem lýkur með prófgráðu. Námið er þá metið ýmist sem hluti af skyldunámi, eða sem hluti af bundnu eða frjálsu vali. Örnám getur verið allt frá 1 ECTS-einingu að 59 ECTS-einingum og er bæði á grunn- og framhaldsstigi. Örnám getur hentað mjög vel með vinnu og eykur hæfni fólks til þátttöku í atvinnulífi.
Námið byggir á stöðlum sem settir hafa verið af MICROBOL og Bologna-ferlin. Markmið þess er að bæta færni einstaklinga til að mæta þörfum vinnumarkaðarins og samfélagsins almennt. Örnám er hannað til að vera sveigjanlegt, aðgengilegt og viðurkennt bæði innanlands og alþjóðlega.
Kennarar gegna lykilhlutverki í þróun og kennslu örnáms. Með því að taka þátt geta þeir:
- miðlað þekkingu sinni til nýrra markhópa, s.s. starfandi fagfólks utan háskólans
- þróað nýjar námsleiðir sem nýtast bæði í grunnnámi og símenntun
- byggt upp samstarf við atvinnulífið og styrkt tengsl fræðasviðsins við samfélagið
- nýtt sér tækifæri til starfsþróunar og nýsköpunar í eigin kennslu
Örnám hentar sérstaklega vel fagfólki á vinnumarkaði sem vill bæta við sig hæfni, uppfæra þekkingu sína eða snúa sér að nýju sviði. Margir velja örnám til að efla sig í starfi, án þess að þurfa að skuldbinda sig í fullt nám.
Örnám hentar fjölbreyttum hópi einstaklinga, þar á meðal:
-
Núverandi og fyrrverandi nemendum sem vilja bæta við sig sértækri þekkingu eða færni.
-
Starfsfólki sem þarf að uppfæra eða auka hæfni sína í takt við þróun á vinnumarkaði.
-
Atvinnuleitendum sem vilja auka samkeppnishæfni sína.
-
Þeim sem leita að persónulegri þróun og vilja læra nýja hluti á sveigjanlegan hátt.
Nemendur sækir um örnám í umsóknagáttinni eins og annað nám, nema ef það er kennt hjá Endurmenntun þá er sótt um þar. Kennsla fer ýmist fram innan HÍ eða hjá Endurmenntun HÍ. Ef kennsla fer fram hjá HÍ er skrásetningargjald hið sama og annarra nemenda sem sækja um nám í HÍ. Ef kennsla fer fram hjá Endurmenntun getur skráningargjald verið breytilegt en það kemur alltaf skýrt fram á þeirri síðu sem helguð er hverri örnámsleið. Örnám við Endurmenntun er alltaf boðið í samstarfi við deild innan HÍ og þá ber deildin ábyrgð á hversu mörgum ECTS-einingum námið samsvarar. Alltaf er tekið sérstaklega fram á örnámsleiðinni sjálfri ef hún er kennd hjá Endurmenntun.
Heimasíða örnáms er hi.is/ornam. Þar má finna yfirlit yfir allt örnám hjá HÍ ásamy hagnýtum upplýsingum fyrir bæði nemendur og kennara.
Ef þú vilt vita meira um möguleika örnáms og hvernig það getur fallið að þínu fagi þá er þér velkomið að hafa samband við Kennslumiðstöð og óska eftir aðstoð kennslumidstod@hi.is.
Hvaða fræðslu fyrir almenning og endurmenntun mega deildir og stofnanir HÍ bjóða upp á skv. 64. grein?
Ábyrgð deildar
- Deild ber faglega ábyrgð á náminu.
- Námið er hluti af hefðbundnu námi innan deildar.
- Námið er eftir atvikum metið til eininga, í samræmi við samkomulag stofnunar og deildar.
- Álitaefnum sem varða námið skal ávallt vísað til deildar.
- Fyrir hefðbundið nám er óheimilt að innheimta annað gjald en skrásetningargjald, sbr. a-lið 24. gr. laga um opinbera háskóla.
Dæmi: Eininganámskeið á grunn- og meistarastigi.
Ábyrgð Endurmenntunar
ÁEV – Hefðbundið nám er alltaf á ábyrgð deildar í HÍ.
Fræðsla fyrir almenning og endurmenntun sem fellur undir óhefðbundið nám t.d. á grundvelli þess að:
- Markhópur er óvenjulegur
- Námsfyrirkomulag er óhefðbundið
- Kostnaður vegna náms er óvenju mikill
- Umsjón og skipulagning náms er viðamikil eða flókin
- Bregðast þarf við fræðsluþörf með snerpu
Ábyrgð deildar
- Deild ber faglega ábyrgð á náminu.
- Námið er eftir atvikum metið til eininga, í samræmi við samkomulag stofnunar og deildar.
- Nám á meistarastigi sem miðar að skilgreindum námslokum eða prófgráðu skal lúta sérstökum reglum.
- Óheimilt er að fella skipulagt grunnnám til bakkalárgráðu undir ákvæði þessarar greinar.
- Álitaefnum sem varða námið skal ávallt vísað til deildar.
- Samstæð heild einingabærra námskeiða getur aldrei numið fleiri einingum en 1/3 af skilgreindri prófgráðu hjá HÍ.
- Deild er heimilt að ákveða að endurmenntunarnámi á vegum hennar, og metið er til eininga, ljúki með sérstakri prófgráðu.
Dæmi:
Jákvæð sálfræði – Menntavísindasvið
Sálgæsla – Guðfræði- og trúarbragðadeild
Ökukennarnám til almennra réttinda – Menntavísindasvið
Ábyrgð Endurmenntunar
- Námskeið eða nám sem Endurmenntun HÍ þróar og setur upp. Getur verið í samstarfi við deild í HÍ en þarf ekki að vera það. Aðrir mögulegir samstarfsaðilar EHÍ geta verið stjórnvöld, fyrirtæki, stofnanir eða fagfélög.
- Ef nám er metið til eininga þarf deild innan HÍ að meta það og þannig ábyrgjast að námið uppfylli gæða- og námskröfur HÍ sbr. 10. gr. laga nr. 63/2006 um háskóla.
- Ef deildin metur slík námskeið/nám/samstæða heild einingabærra námskeiða til prófgráðu hjá sér þá mega þær einingar aldrei nema meira en 1/3 af gráðunni hjá HÍ.
- Álitaefnum er varða námið skal vísa til þeirrar stofnunar sem skipuleggur eða stendur fyrir náminu.
Dæmi:
Nám til löggildingar fasteigna- og skipasala – Grunnstig lagadeild (90 ein. – mat á umfangi.)