Nemendur og siðferðileg notkun gervigreindar
Image

Gervigreind í námi – hvernig á að nota hana?
Það getur verið gagnlegt að nota gervigreind í námi, en það fer eftir námskeiðinu hvað er leyfilegt. Ef þú ert ekki viss, er best að spyrja kennarann – kennarinnn getur sagt þér hvort og hvernig nota megi gervigreind í verkefnum.
Kennarar ákveða sjálfir hvort, og þá hvernig, gervigreindartól megi nýta:
-
Sum námskeið leyfa notkun gervigreindar í ákveðnum verkþáttum en banna hana í öðrum.
-
Í öðrum tilvikum er notkun gervigreindar alfarið bönnuð.
Nemendur bera ábyrgð á því að fylgja þessum reglum. Brot á þeim telst brot á siðareglum Háskóla Íslands og getur haft afleiðingar.