Gervigreind og heimildaskráning
Gervigreind getur flýtt fyrir og einfaldað upplýsingaleit í námi og rannsóknum. Það er þó alltaf mikilvægt að meta gæði og áreiðanleika efnisins sjálf(ur). Ef þú notar efni frá gervigreindartóli í verkefni skaltu vísa í það eins og hverja aðra heimild.
Athugaðu fyrst reglur kennarans. Sum námskeið eru með sérstakar leiðbeiningar um notkun og tilvísanir í efni sem gervigreindartól hafa búið til. Ef ekki, má styðjast við leiðbeiningarnar hér fyrir neðan.
Frá og með haustönn 2024 hafa helstu heimildakerfi (APA, MLA og Chicago) ekki gefið út opinberar reglur um hvernig eigi að vísa í gervigreind. Hins vegar hefur verið lagt til hvernig megi haga slíkum tilvísunum þar til ný útgáfa stílbókanna birtist.
Sæktu leiðbeiningar um tilvísanir í gervigreindarefni (PDF):
Þú getur pantað tíma hjá Ritverinu til að óska eftir nánari aðstoð!
