Að undirbúa nemendur fyrir framtíð sem mótast af gervigreind

Image

Gervigreind (AI) er þegar farin að umbreyta atvinnulífi og menntun og kröfurnar sem gerðar eru til þekkingar og hæfni framtíðarinnar eru að breytast hratt. Háskóli Íslands leggur sig fram við að búa nemendur og starfsfólk undir heim þar sem gervigreind er sífellt meira áberandi.

 

Samþætting gervigreindar í námsgreinum og fögum

Við viðurkennum að áhrif gervigreindar ná langt út fyrir tölvunarfræði og verkfræði. Gervigreind ER innleidd í fjölbreytta flóru náms:

  • Námsefni uppfært með gervigreindarefni
    Við bætum við efni sem útskýrir hvernig gervigreind nýtist í mismunandi greinum – allt frá heilbrigðisfræði til hugvísinda.

  • Þverfaglegt samstarf
    Nemendur úr ólíkum greinum eru hvattir til að vinna saman að verkefnum þar sem gervigreindin er nýtt, með áherslu á samvinnu og lausnarmiðaða nálgun.

 

Grunnfærni í gervigreind sem nemendur þurfa að tileinka sér

Við leggjum áherslu á að þróa lykilhæfni fyrir framtíðina:

  • Gervigreindarlæsi
    Nemendur læra að skilja, meta og nýta gervigreindartól á ábyrgan hátt.

  • Aðlögunarhæfni
    Námið miðar að því að efla sveigjanleika og sjálfstæði í samfélagi sem breytist hratt með tækninýjungum.

  • Siðferðileg meðvitund
    Við hvetjum nemendur til að hugleiða samfélagsleg áhrif gervigreindar og taka upplýstar ákvarðanir um notkun hennar.

 

Reynslumiðað nám og samstarf við atvinnulífið

Við bjóðum upp á hagnýta leið til að kynnast gervigreindinni í verki:

  • Gervigreinar-tilraunaverkefni og smiðjur
    Nemendur geta tekið þátt í rannsóknum og þróunarverkefnum þar sem gervigreindin er nýtt í raunverulegum aðstæðum.

  • Samstarf við atvinnulífið
    Við vinnum með fyrirtækjum og stofnunum sem nota gervigreind – nemendur fá tækifæri til starfsþjálfunar, verkefna og fá tengingu við atvinnulífið.

 

Þróun kennara og stuðningur við starfsfólk

Við styðjum við kennara og annað starfsfólk til að tileinka sér gervigreindina:

  • Símenntun og vinnustofur
    Við bjóðum reglulega námskeið og fræðslu um notkun gervigreindar í kennslu, námsmati og verkefnavinnu.

  • Aðgangur að verkfærum og efni
    Kennarar fá aðgang að gervigreindarverkfærum og hagnýtu efni til að þróa eigin kennsluhætti og halda í við tækniframfarir.

 

Símenntun og sveigjanlegar námsleiðir

Við höfum skuldbundið okkur til að styðja við nám á öllum æviskeiðum:

  • Örnám (micro-credentials)
    Háskólinn býður upp á stutt, markviss námskeið sem miða að því að styrkja sérstaka hæfni eða þekkingu – hagnýtt fyrir fólk í atvinnulífinu og fyrir áframhaldandi nám.

  • Samfélagsleg þátttaka
    Við opnum fyrir fyrirlestra og viðburði um gervigreind fyrir almenning til að efla tæknilæsi og lýðræðislega umræðu.

 

Stefna Háskóla Íslands 2021–2026 og framtíðarsýn

Þessi nálgun samræmist stefnu Háskólans (HÍ26) um að efla þverfaglega samvinnu, alþjóðlegt samstarf, nýsköpun og sjálfbærni. Með því að samþætta gervigreind í kennslu og rannsóknir, stuðlum við að opnu, fjölbreyttu og ábyrgu háskólasamfélagi.

Lesa má nánar um stefnu HÍ hér: Stefna Háskóla Íslands 2021–2026