Ábyrg innleiðing gervigreindartóla í námi og kennslu

Til að tryggja ábyrga, lögmæta og siðferðilega notkun gervigreindartóla á borð við ChatGPT og Copilot í háskólanámi – í samræmi við GDPR og siðferðileg viðmið– skal fylgja eftirfarandi leiðarljósum:
1. Fáið skýrt samþykki frá nemendum
Nemendur skulu fá skýrar upplýsingar um hvernig og í hvaða tilgangi gervigreindartól verða nýtt í námskeiði. Greinið frá því hvaða gögn tól geta skráð eða vistað, í samræmi við skilmála þeirra. Tilgreinið þessa notkun í námskeiðslýsingu og gerið nemendum kleift að veita upplýst samþykki – bæði vegna notkunar tólsins og vegna mögulegrar vinnslu eða varðveislu persónuupplýsinga.
2. Setjið persónuvernd í forgang
Notið eingöngu gervigreindartól sem uppfylla GDPR-reglur. Gangið úr skugga um að gögn séu meðhöndluð á öruggan og löglegan hátt. Ekki slá inn persónugreinanlegar upplýsingar nema þið hafir staðfest að tólið sé í samræmi við persónuverndarlög.
3. Veljið tól með áherslu á friðhelgi
Kjósið forrit og þjónustur sem:
- Bjóða upp á að slökkva á gagnaöflun og þjálfun líkana.
- Útskýra með skýrum hætti hvernig gögn eru geymd og unnin.
- Bjóða upp á nafnlaus eða dulkóðuð gögn.
4. Tryggið gagnsæi gagnvart nemendum
Kennarar ættu frá upphafi að útskýra hvernig og að hvaða marki gervigreindartól verða leyfð eða notuð í námskeiðinu.
Skilgreinið:
- Í hvaða verkefnum má (eða má ekki) nota gervigreind og í hvaða tilgangi.
- Hvar mörkin liggja – til dæmis varðandi ritsmíðar, hugmyndavinnu eða úrvinnslu gagna.
- Hvaða takmarkanir og möguleg vandamál fylgja notkun gervigreindar í námi, svo sem skortur á áreiðanleika, hlutdrægni eða misvísandi upplýsingum.
- Hvernig notkun gervigreindar tengist námsmarkmiðum námskeiðsins og hvað nemendur eiga að læra með eða án hennar.
5. Samræmið námskeiðsreglur við reglur um akademískan heiðarleika
Setjið skýrar leiðbeiningar um hvað telst viðeigandi notkun.
Dæmi:
- Gervigreind má nota til að skipuleggja hugmyndir eða draga saman efni, en nemendur skulu skrifa lokaútfærslur sjálfir.
- Heimilt er að nota gervigreind til að búa til uppkast, en nemendur skulu sjálfir vinna og endurskoða textann.
6. Tryggið örugga gagnanotkun
Hvetjið kennara og nemendur til að nota stofnanaaðgang í stað persónulegra reikninga til að tryggja öruggari gagnavinnslu. Forðist að slá inn persónulegar upplýsingar eins og nöfn, einkunnir eða auðkenni.
7. Fræðið nemendur um ábyrga notkun
Kennið nemendum að:
- Meta gæði og áreiðanleika úttaks frá gervigreindartólum.
- Axla ábyrgð á eigin vinnu og skrá með viðeigandi hætti þegar AI hefur verið notað.
8. Prófið tólin áður en þau eru notuð í kennslu
Tryggið að valin tól::
- Styðji námsmarkmið og hæfniviðmið námskeiðs.
- Uppfylli siðferðis- og persónuverndarkröfur.
9. Hvetjið til gagnrýninnar umræðu
Búið til verkefni þar sem nemendur ígrunda og meta hvernig og hvers vegna þeir nýta gervigreind. Ræðið siðferðileg álitamál tengd notkun gervigreindar í háskólanámi og samfélaginu almennt.
10. Lágmarkið gagnasendingar út fyrir EES
Ef notast er við gervigreindartól utan Evrópu:
- Athugaðu hvort þau uppfylli skilyrði GDPR og noti stöðluð samningsákvæði (SCC).
- Forðist tól sem veita óljósar eða ófullnægjandi upplýsingar um gagnameðferð og persónuvernd.