HVENÆR
12. mars 2025
14:00 til 15:30
HVAR
Setberg
3.hæð Suðurberg
NÁNAR

Miðvikudaginn 12. mars munum við bjóða uppá vinnustofu í FeedbackFruits, þar sem verkfærin Hópamyndun (e. Group Formation) og Teymisnám (e. Team Based Learning) verða kynnt. Vinnustofan er hugsuð fyrir öll sem hafa áhuga á að nýta verkfæri FeedbackFruits í kennslu. Í vinnustofunni verður farið yfir umrædd verkfæri í FeedbackFruits og  þátttakendur fá í kjölfarið tækifæri til að prufa sig áfram. Tveir sérfræðingar verða á staðnum til að fræða, veita aðstoð og svara spurningum.  

Dæmi um fræðslu og aðstoð sem kennarar geta fengið í vinnustofunni:   

  • Fræðslu um tólin Hópamyndun og Teymisnám í FeedbackFruits 

  • Sýn á virkni verkfæranna  

  • Aðstoð við að setja upp verkefni í FeedbackFruits. 
     

Umsjónamenn vinnustofunar eru Harpa Dögg Fríðudóttir og María Kristín Bjarnadóttir  

Vinnustofan verður frá 14:00-15:30 í Suðurbergi 3.hæð í Setbergi. Mælum með að koma með eigin tölvu. 

Yfirlit og nánari upplýsingar um verkfærin í FeedbackFruits: FeedbackFruits í Canvas 
 

Tengill á skráningu. 

Bestu kveðjur,  

Canvas teymið 
Kennslumiðstöð 

Image