HVENÆR
18. september 2024
14:00 til 15:30
HVAR
Setberg
Suðurberg 3 hæð
NÁNAR

Vinnustofan fer fram á íslensku. 

Miðvikudaginn 18.september munum við bjóða uppá vinnustofu í FeedbackFruits, þar sem verkfærin Hópamyndun (Group Formation) og Teymisnám (Team Based Learning) verða kynnt. Vinnustofan er hugsuð fyrir alla áhugasama kennara um nýtingu FeedbackFruits í kennslu. Í vinnustofunni felst meðal annars yfirferð á verkfærunum Hópamyndun og Teymisnám og einnig fá þátttakendur í kjölfarið tækifæri til að prufa sig áfram. Tveir sérfræðingar verða á staðnum til að fræða, veita aðstoð og svara spurningum.

Dæmi um fræðslu og aðstoð sem kennarar geta fengið í vinnustofunni:  

  • Fræðslu um tólin Hópamyndun og Teymisnám í FeedbackFruits
  • Sýn á virkni tólanna
  • Aðstoð við að setja upp verkefni í FeedbackFruits.

Vinnustofan verður frá 14:00-15:30 í Suðurbergi 3.hæð í Setbergi. Mælum með að koma með eigin tölvu.

Bestu kveðjur, 

Canvas teymið
Kennslumiðstöð

Image