14:00 til 15:30
Mánudaginn 7. apríl mun Kennslumiðstöð bjóða uppá vinnustofu í FeedbackFruits þar sem verkfærin Endurgjöf fyrir hæfni, Endurgjöf fyrir verkefni, Umræða um málefni, Umræðuverkefni og könnun í FeedbackFruits verða kynnt.
Vinnustofan er hugsuð fyrir öll sem hafa áhuga á að nýta verkfæri FeedbackFruits í kennslu. Í vinnustofunni verður farið yfir umrædd verkfæri í FeedbackFruits og þátttakendur fá í kjölfarið tækifæri til að prufa sig áfram. Tveir sérfræðingar verða á staðnum til að fræða, veita aðstoð og svara spurningum.
Upplýsingar um vinnustofu:
Dagsetning: Mánudagurinn, 7. apríl.
Tímasetning: 14:00-15:30
Staðsetning: Suðurberg, 3.hæð, Setbergi
Hvað á að koma með: Mælt er með að koma með fartölvu með sér
Við hverju má búast:
Yfirlit: Kynnumst verkfærunum fyrir endurgjöf, umræður og könnun í FeedbackFruits.
Reynsla af fyrstu hendi: Þátttakendur munu fá tækifæri til að prófa verkfærin í FeedbackFruits.
Dæmi um fræðslu og aðstoð sem kennarar geta fengið í vinnustofunni:
- Fræðsla um endurgjafarverkfæri í FeedbackFruits
- Fræðsla um umræðuverkfæri í FeedbackFruits
- Fræðsla um könnun í FeedbackFruits
- Sýn á virkni verkfæranna
- Aðstoð við að setja upp verkefni í FeedbackFruits.
Umsjónarmenn vinnustofunnar eru Harpa Dögg Fríðudóttir og María Kristín Bjarnadóttir
Yfirlit og nánari upplýsingar um verkfærin í FeedbackFruits: FeedbackFruits í Canvas
Bestu kveðjur,
Canvas teymið
Kennslumiðstöð Háskóla Íslands
