14:00 til 15:30
Þriðjudaginn 25. mars mun Kennslumiðstöð bjóða uppá vinnustofu í FeedbackFruits þar sem sjálfsmatsverkfærin tvö í FeedbackFruits verða kynnt
Vinnustofan er hugsuð fyrir öll sem hafa áhuga á að nýta verkfæri FeedbackFruits í kennslu. Í vinnustofunni verður farið yfir umrædd verkfæri í FeedbackFruits og þátttakendur fá í kjölfarið tækifæri til að prufa sig áfram. Tveir sérfræðingar verða á staðnum til að fræða, veita aðstoð og svara spurningum.
Upplýsingar um vinnustofu:
Dagsetning: Þriðjudagurinn, 25. mars.
Tímasetning: 14:00-15:30
Staðsetning: Suðurberg, 3.hæð, Setbergi
Hvað á að koma með: Mælt er með að koma með fartölvu með sér
Við hverju má búast:
Yfirlit: Kynnumst verkfærunum Sjálfsmat á verkefni og Sjálfsmat á hæfni í FeedbackFruits.
Reynsla af fyrstu hendi: Þátttakendur munu fá tækifæri til að prófa verkfærin í FeedbackFruits.
Dæmi um fræðslu og aðstoð sem kennarar geta fengið í vinnustofunni:
-
Fræðslu um sjálfsmatsverkfærin í FeedbackFruits
-
Sýn á virkni verkfæranna
-
Aðstoð við að setja upp verkefni í FeedbackFruits.
Umsjónarmenn vinnustofunnar eru Harpa Dögg Fríðudóttir og María Kristín Bjarnadóttir
Yfirlit og nánari upplýsingar um verkfærin í FeedbackFruits: FeedbackFruits í Canvas
Bestu kveðjur,
Canvas teymið
Kennslumiðstöð Háskóla Íslands
