Úrlausn vandamála
Úrlausn vandamála er það ferli að hanna meta og innleiða aðferðir til að svara opinni spurningu eða ná æskilegu markmiði. Að leysa vandamál felur í sér ákvarðanatöku.
Úrlausn vandamála - undirhæfni
- Skilgreining á vandamáli
- Að finna/koma auga á aðferðir
- Tillögur að lausnum/tilgátur
- Mat á hugsanlegum lausnum
- Útfærsla lausnar
- Mat á niðurstöðum
Úrlausn vandamála - Skilgreining á vandamáli
Lágmark - Sýnir fram á takmarkaða færni til að setja fram lýsingu á vandamáli eða tengdum samhengisþáttum.
Annar áfangi - Er byrjaður/byrjuð að sýna fram á færni til að setja fram lýsingu á vandamáli þar sem flestir viðeigandi samhengisþættir eru teknir til greina, en lýsingin er yfirborðskennd.
Þriðji áfangi - Sýnir fram á færni til að setja fram lýsingu á vandamáli þar sem flestir viðeigandi samhengisþættir eru teknir til greina og þar sem lýsing vandamálsins er nægilega nákvæm.
Framúrskarandi - Sýnir fram á færni til að setja fram skýra lýsingu á vandamáli byggða á insæi þar sem allir viðeigandi samhengisþættir eru teknir til greina.
Úrlausn vandamála - Að finna/koma auga á aðferðir
Lágmark - Kemur auga á eina eða fleiri leiðir til að leysa vandamálið, en þær eiga ekki við í viðkomandi samhengi.
Annar áfangi - Kemur auga á eina leið til að leysa vandamálið, sem eiga við í viðkomandi samhengi.
Þriðji áfangi - Kemur auga á margar leiðir til að leysa vandamálið, en aðeins sumar þeirra eiga við í viðkomandi samhengi.
Framúrskarandi - Kemur auga á margar leiðir til að leysa vandamálið, sem eiga við í viðkomandi samhengi.
Úrlausn vandamála - Tillögur að lausnum/tilgátur
Lágmark - Leggur fram lausn/tilgátu sem erfitt er að meta vegna þess að hún er óljós eða tekur aðeins óbeint á vandamálinu.
Annar áfangi - Leggur til eina lausn/tilgátu sem er „tilbúin“ eða fyrirliggjandi, fremur en lausn sem tekur til greina tiltekna samhengisþætti í tengslum við vandamálið.
Þriðji áfangi - Leggur til eina eða fleiri lausnir/tilgátur sem eru til marks um skilning á vandamálinu. Lausn/tilgátur taka mið af samhengisþáttum, sem og einum eftirfarandi þátta: siðferðilegum, röklegum eða menningarbundnum víddum vandamálsins.
Framúrskarandi - Leggur til eina eða fleiri lausnir/tilgátur sem eru til marks um djúpan skilning á vandamálinu. Lausn/tilgátur taka mið af samhengisþáttum, sem og öllum eftirfarandi þáttum: siðferðilegum, röklegum og menningarbundnum víddum vandamálsins.
Úrlausn vandamála - Mat á hugsanlegum lausnum
Lágmark - Mat á lausnum er yfirborðskennt (t.d. hefur aðeins mjög stutta skýringu sem ristir grunnt) og felur í sér eftirfarandi: tekur til greina sögu vandamálsins, fer yfir röksemdafærslu, kannar fýsileika lausnarinnar og leggur mat á áhrif hennar.
Annar áfangi - Mat á lausnum er stutt (t.d. er skýring yfirborðskennd) og felur í sér eftirfarandi: tekur til greina sögu vandamálsins, fer yfir röksemdafærslu, kannar fýsileika lausnarinnar og leggur mat á áhrif hennar.
Þriðji áfangi - Mat á lausnum er ásættanlegt (t.d. hefur ítarlega skýringu) og felur í sér eftirfarandi: tekur til greina sögu vandamálsins, fer yfir röksemdafærslu, kannar fýsileika lausnarinnar og leggur mat á áhrif hennar.
Framúrskarandi - Mat á lausnum er djúphugult og vandað (t.d. ítarlegar skýringar sem lýsa miklu innsæi) með djúpstæðri og rækilegri greinargerð um allt eftirfarandi: tekur til greina sögu vandamálsins, fer yfir röksemdafærslu, kannar fýsileika lausnarinnar og leggur mat á áhrif hennar.
Úrlausn vandamála - Útfærsla lausnar
Lágmark - Lausnin útfærð á þann hátt að ekki er tekið á vandamálinu með beinum hætti.
Annar áfangi - Lausnin útfærð á þann hátt að tekið er á vandamálinu, en horft fram hjá viðeigandi samhengisþáttum.
Þriðji áfangi - Lausnin útfærð á þann hátt að tekið er á mörgum samhengisþáttum vandamálsins en yfirborðslega.
Framúrskarandi - Lausnin útfærð þannig að tekið er ítarlega og af dýpt á mörgum samhengisþáttum vandanmálsins.
Úrlausn vandamála - Mat á niðurstöðum
Lágmark - Farið yfir niðurstöður varðandi skilgreint vandamál en ekkert litið til þess hvort þörf er fyrir frekari rannsóknir.
Annar áfangi - Farið yfir niðurstöður varðandi skilgreint vandamál en lítið eða ekkert litið til þess hvort þörf er fyrir frekari rannsóknir.
Þriðji áfangi - Farið yfir niðurstöður varðandi skilgreint vandamáli og að hluta litið til þess hvort þörf er fyrir frekari rannsóknir.
Framúrskarandi - Farið ítalrlega yfir niðurstöður varðandi skilgreint vandamáli og sérstaklega litið til þess hvort þörf er fyrir frekari rannsóknir.