Hvenær
22. nóvember 2024
09:00 til 16:00
Hvar
Veröld - hús Vigdísar
Nánar

Aðgangur ókeypis

Kennsluakademía opinberu háskólanna heldur ráðstefnu í Veröld – húsi Vigdísar, föstudaginn 22. nóvember 2024 klukkan 9:00-16:00.

Markmið Kennsluakademíunnar er að skapa vettvang fyrir umræðu um háskólakennslu. Gestgjafi ráðstefnunnar í ár er Félagsvísindasvið Háskóla Íslands.

Þema ráðstefnunnar er hvernig megi brúa bilið á milli framhaldsskóla og háskóla og ígrunda hvernig hægt er að koma til móts við nútímanemandann í háskóla.

Ráðstefnan er ætluð öllum þeim sem láta sig kennslu á háskólastigi varða, kennurum, nemendum og stjórnendum.

Ráðstefnan er þátttakendum að kostnaðarlausu en skráning er nauðsynleg. Skráning fer fram á vefsíðu Kennsluakademíunnar

Share