
Kæra starfsfólk,
Kennslumiðstöð Háskóla Íslands býður ykkur hjartanlega velkomin í opið hús þar sem þið getið fengið aðstoð við allt sem viðkemur einkunnagjöf og flutningi einkunna úr Canvas yfir í Uglu.
Opna húsið verður haldið í Suðurbergi á 3. hæð í Setbergi frá klukkan 12:30-14:30 miðvikudaginn 14. maí.
Hlökkum til að sjá ykkur,
Kennslumiðstöð Háskóla Íslands