Image
Setberg

Nýr vefur Setbergs, húss kennslunnar, (setberg.hi.is) er nú kominn í loftið. Vefurinn hefur það að meginmarkmiði að miðla upplýsingum til kennara um kennslu, kennsluþróun, námsmat, próf og flest það sem viðkemur kennslumálum. 

Í Setbergi starfa nokkrar starfseiningar kennslusviðs sem flestar snúa að alls kyns þjónustu við kennara og með þessum vef viljum við gera þá þjónustu sýnilegri í þeirri von að fleiri kennarar sjái sér hag í að þróa kennsluna sína og fá til þess aðstoð þeirra sérfræðinga sem hér starfs.