Skrifleg samskipti

Skrifleg samskipti eru þróun og tjáning hugmynda í rituðu máli. Færni í skriflegum samskiptum felur í sér að geta unnið með ólíkar textategundir og mismunandi stíl. Það getur falist í að vinna með ólíkar ritunaraðferðir og blöndun texta, mynda og (tölfræðilegra) gagna. Færni í skriflegum samskiptum þróast með síendurtekinni reynslu í formlegu námi.

Skrifleg samskipt - undirhæfni

  • Samhengi og markmið skrifa. Inniheldur ígrundun um lesendur, tilgang og ytri aðstæður skrifa.
  • Þróun efnis
  • Hefðir innan fræðigreina og -sviða. Formlegar og óformlegar reglur sem snerta væntingar til tiltekinna  fræðaskrifa eða textategunda (sjá hugtakalista).
  • Heimildir og gögn
  • Vald á setningafræði og málfræði 

 

Skrifleg samskipti - Samhengi og markmið skrifa. 

Lágmark - Sýnir lágmarks skilning á samhengi, lesendum, tilgangi og því verkefni sem sett var fyrir (t.d. væntingar kennara eða hans sjálfs sem lesanda).

Annar áfangi - Sýnir að höfundur er meðvitaður um samhengi, lesendur og það verkefni sem sett var fyrir (t.d. sýnir vaknandi  vitund um viðbrögð og forsendur lesenda).

Þriðji áfangi - Sýnir fullnægjandi skilning  á samhengi, lesendum og tilgangi og hefur skýran fókus á það verkefni sem sett var fyrir (t.d. verkefnið tekur mið af lesendum, tilgangi og samhengi).

Framúrskarandi - Sýnir ítarlegan skilning á samhengi, lesendum og tilgangi sem í samræmi við það verkefni sem sett var fyrir og skerpir á öllum þáttum í verkefninu.

 

Skrifleg samskipti - Þróun efnis

Lágmark - Notar viðeigandi efni til að þróa einfaldar hugmyndir í sumum þáttum verkefnisins.

Annar áfangi - Notar viðeigandi efni til að kanna og þróa hugmyndir í flestum þáttum verkefnisins.

Þriðji áfangi - Notar viðeigandi og trúverðugt efni til að kanna hugmyndir innan fræðasviðsins og móta það í heild.

Framúrskarandi - Notar viðeigandi og trúverðugt efni sem sýnir að höfundur hefur góð tök á viðfangsefninu, hefur skilning  á því og mótar verkefnið í heild.

 

Skrifleg samskipti - Hefðir innan fræðigreina og -sviða.

Lágmark - Gerir tilraunir til að fylgja samræmdu kerfi þegar kemur að grunnskipulagi og framsetningu. 

Annar áfangi - Fylgir því sem til er ætlast á  tilteknu fræðasviði og/eða í textategund í grunnskipulagi, inntaki og framsetningu.

Þriðji áfangi - Sýnir samkvæmni í að fylgja mikilvægum hefðum tiltekins fræðasviðs og/eða textategundar, þ.m.t. varðandi skipulag, inntaki framsetningu og blæbrigði

Framúrskarandi - Sýnir fram á að vera vel meðvitaður um og fær um að beita fjölþættum hefðum fræðasviðs og/eða textategundar, þ.m.t. varðandi skipulag, inntak, framsetningu, sniðmát og blæbrigði.

 

Skrifleg samskipti - Heimildir og gögn

Lágmark - Sýnir viðleitni til að styðjast við heimildir til að styðja hugmyndir sem koma fram í skrifunum.

Annar áfangi - Sýnir viðleitni til að styðjast við traustar og viðeigandi heimildir til að styðja við hugmyndir sem eru viðeigandi fyrir  fræðasvið og textategund skrifanna.

Þriðji áfangi - Notar gegnumgangandi traustar og viðeigandi heimildir til að styðja við hugmyndir sem falla undir fræðasvið og textategund skrifanna.

Framúrskarandi - Sýnir fram á töluverða færni í notkun sinni á traustum, viðeigandi heimildum sem hann nýtir til að þróa hugmyndir sem eiga við fræðasvið og textategund skrifanna.

 

Skrifleg samskipti - Vald á setningafræði og málfræði 

Lágmark - Málfar kemur á köflum í veg fyrir skýran skilning á merkingu vegna fjölda  villa í setninga- og málfræði.

Annar áfangi - Notar málfar sem kemur almennt merkingu höfundar til skila með tiltölulega skýrum hætti þó að einhverjar setningafræði- og málfræðivillur séu til staðar.

Þriðji áfangi - Beitir skýru málfari sem kemur almennt merkingu höfundar til skila. Fáar setningafræði- og málfræðivillur eru í verkefnunum í sýnismöppunni/ferilmöppunni.

Framúrskarandi - Beitir fáguðu málfari sem kemur -merkingu höfundar til skila með skýrum og greinargóðum hætti, þar sem varla má vinna villur í setninga- og málfræði.