Teymisvinna

Teymisvinna er vinna sem er unnin sameiginlega af teymi, hópvinna (Íslensk nútímamálsorðabók). Hversu vel teymisvinna gengur er komið undir framkomu einstaklinga sem mynda hópinn (það sem þeir leggja af mörkum til hópverkefnisins, samskipti þeirra við aðra meðlimi hópsins, magn og gæði framlags þeirra til hópumræðna).

Teymisvinna - undirhæfni

  • Virk þátttaka í teymisfundum
  • Auðveldar þátttöku annarra í hópnum
  • Framlög einstaklinga utan teymisfunda
  • Skapar uppbyggilegan anda í hópnum
  • Bregst við ágreiningi

 

Teymisvinna - Virk þátttaka í teymisfundum

Lágmark - Deilir hugmyndum sínum en ýtir ekki undir framvindu vinnu hópsins.

Annar áfangi - Leggur fram nýjar tillögur til að ýta undir framvindu í vinnu hópsins.

Þriðji áfangi - Leggur til valkosti við úrlausn sem byggir á hugmyndum annarra.

Framúrskarandi - Hjálpar hópnum að komast áfram í vinnu sinni með því að vekja athygl á verðleikum hugmynda og tillagna annarra.

 

Teymisvinna - Auðveldar þátttöku annarra í hópnum

Lágmark - Tekur þátt með því að taka orðið þegar röðin er komin að honum/henni og hlustar á aðra án þess að grípa fram í fyrir þeim.

Annar áfangi - Virkjar hópmeðlimi  þannig  að þeir eigi auðveldara með að leggja til málanna á fundum með því að endurtaka skoðanir annarra eða spyrja spurninga til að fá fram skýrara álit.

Þriðji áfangi - Virkjar hópmeðlimi  þannig  að þeir eigi auðveldara með að leggja til málanna á fundum með því að grípa hugmyndir annarra og þróa þær áfram.

Framúrskarandi - Virkjar hópmeðlimi  þannig  að þeir eigi auðveldara með að leggja til málanna á fundum, bæði með því að grípa hugmyndir annarra og byggja á þeim og eins með því að taka eftir þegar meðlimir eru óvirkir og hvetja þá til þátttöku.

 

Teymisvinna - Framlög einstaklinga utan teymisfunda

Lágmark - Lýkur verkefnum tímanlega fyrir skilafrest.

Annar áfangi - Lýkur verkefnum tímanlega fyrir skilafrest; Framlag til verkefnisins hefur stutt framvindu í vinnu hópsins.

Þriðji áfangi - Lýkur verkefnum tímanlega fyrir skilafrest; Úrlausnin er yfirgripsmikil og ítarleg og hefur stutt framvindu í vinnu hópsins.

Framúrskarandi - Lýkur verkefnum tímanlega fyrir skilafrest; Úrlausnin er yfirgripsmikil og ítarleg og hefur stutt framvindu í vinnu hópsins. Hefur sýnt frumkvæði að því að hjálpa öðrum meðlimum hópsins að ljúka sínum verkefnum svo þau standist gerðar kröfur.

 

Teymisvinna - Skapar uppbyggilegan anda í hópnum

Lágmark - 

Nemandi stuðlar að uppbyggilegum starfsanda með því að gera eitt af eftirfarandi:
•    Kemur fram við meðlimi hópsins af virðingu og er uppbyggileg/ur í samskiptum.
•    Notar jákvæðan tón í samskiptum sínum, hvort sem þau eru skrifleg eða munnleg, svipbrigði og líkamstjáning gefa í skyn jákvætt viðhorf til hópsins og vinnu hans.
Hvetur meðlimi hópsins áfram með því að láta í ljós trú á mikilvægi verkefnis og getu hópsins til að vinna það.
Býður fram aðstoð og/eða hvetur aðra hópmeðlimi.

Annar áfangi - 

Nemandi stuðlar að uppbyggilegum starfsanda með því að gera tvennt af eftirfarandi:
•    Kemur fram við meðlimi hópsins af virðingu og er uppbyggileg/ur í samskiptum.
•    Notar jákvæðan tón í samskiptum sínum, hvort sem þau eru skrifleg eða munnleg, svipbrigði og líkamstjáning gefa í skyn jákvætt viðhorf til hópsins og vinnu hans.
Hvetur meðlimi hópsins áfram með því að láta í ljós trú á mikilvægi verkefnis og getu hópsins til að vinna það.
Býður fram aðstoð og/eða hvetur aðra hópmeðlimi.

Þriðji áfangi - 

Stuðlar að uppbyggilegum starfsanda með því að gera þrennt af eftirfarandi:
•    Kemur fram við meðlimi hópsins af virðingu og er uppbyggileg/ur í samskiptum.
•    Notar jákvæðan tón í samskiptum sínum, hvort sem þau eru skrifleg eða munnleg, svipbrigði og líkamstjáning gefa í skyn jákvætt viðhorf til hópsins og vinnu hans.
•    Hvetur meðlimi hópsins áfram með því að láta í ljós trú á mikilvægi verkefnis og getu hópsins til að vinna það.
•    Býður fram aðstoð og/eða hvetur aðra hópmeðlimi.

Framúrskarandi - 

Stuðlar að uppbyggilegum starfsanda með því að gera allt eftirfarandi:
•    Kemur fram við meðlimi hópsins af virðingu og er uppbyggileg/ur í samskiptum.
•    Notar jákvæðan tón í samskiptum sínum, hvort sem þau eru skrifleg eða munnleg, svipbrigði og líkamstjáning gefa í skyn jákvætt viðhorf til hópsins og vinnu hans.
•    Hvetur meðlimi hópsins áfram með því að láta í ljós trú á mikilvægi verkefnis og getu hópsins til að vinna það.
•    Býður fram aðstoð og/eða hvetur aðra hópmeðlimi.

 

Teymisvinna - Bregst við ágreiningi

Lágmark - Samþykkir eða tekur ekki afstsöðu gagnvart ólíkum  skoðunum/hugmyndum/sjónarmiðum.

Annar áfangi - Beinir athygli að því að verkefninu og því sem sameinar hópinn (frá ágreiningsmálum).

Þriðji áfangi - Ber kennsl á og viðurkennir ágreining og veigrar sér ekki við honum.

Framúrskarandi - Tekur á skaðlegum ágreiningi með beinum og uppbyggilegum hætti, stuðlar að lausn sem styrkir almenna samheldni teymisins og framtíðar árangur.