Lestur

Lestur er margþætt ferli sem felst í að lesa úr bókstafstáknum eða rittáknum og breyta þeim í hljóð (orðkennsl) og skilja merkingu þeirra.
Með hugtakinu lestur er oft átt við „tæknilegan“ lestur, það er að geta lesið upphátt eða í hljóði, óháð skilningi. Að geta lesið þannig er ekki sama og vera læs.

Lestur - undirhæfni

  • Skilningur
  • Textategund
  • Tengsl við textann (Að skapa merkingu í texta út frá samhengi).
  • Greining (Að skoða textann í heild og í hlutum).
  • Túlkun
  • Rödd lesanda

 

Lestur - Skilningur

Lágmark - Hefur nægilegan skilning á orðaforða textans til að umorða hann eða gera samantekt þannig að skilaboð textans komist til skila.

Annar áfangi - Metur hvernig einkenni textans (t.d. uppbygging málsgreina og efnisgreina eða blæbrigði) styrkja skilaboð höfundar, dregur grunnályktanir um samhengi höfundar og tilgang textans.

Þriðji áfangi - Notar textann, almenna þekkingu á baksviði og/eða sértæka þekkingu á samhengi höfundar til að draga flóknari ályktanir um skilaboð og viðhorf höfundar.

Framúrskarandi - Ber kennsl á það sem textinn gefur til kynna  varðandi samhengi, sjónarhorn eða þætti sem ganga lengra en verkefnið sem lagt var fyrir eða lengra en bókstafleg skilaboð höfundar (t.d. kemur auga á víðtækari mál sem hafa áhrif eða véfengir skilaboð eða framsetningu höfundar).

 

Lestur - Textategund

Lágmark - Beitir þekkingu sinni á textategundum við lestur á ýmsu námsefni með viðunandi árangri en án  ígrundunar.

Annar áfangi - Ígrundar reynslu sína af lestri á mismunandi textategundum, les bæði eins og hefðir textategundar gera ráð fyrir og þvert á hefðir, bæði meðvitað og með tilraunakenndum hætti.

Þriðji áfangi - Getur lýst mun á textategundum og hefðum sem einkenna þær.

Framúrskarandi - Notar kunnáttu sína við að bera kennsl á texta innan og þvert á textategundir og beitir ólíkum nálgunum og mismunandi væntingum út frá einkennum tilekinna textategunda.

 

Lestur - Tengsl við textann

Lágmark - Nálgast texta sem verkefni sem sett hefur verið fyrir  í þeim tilgangi að finna rétt svör og læra þær staðreyndir og þau hugtök sem gerð er krafa um í náminu.

Annar áfangi - Nálgast texta í þeim tilgangi að öðlast þekkingu bæði á viðkomandi málefni og almennt. 

Þriðji áfangi - Notar texta í fræðilegu samhengi til að mynda þekkingargrunn á sínu fræðasviðs og til að varpa fram og kanna mikilvægar spurningar.

Framúrskarandi - Leggur mat á texta út frá fræðilegu vægi hans og mikilvægi, bæði innan fræðasviðs og þvert á mismunandi fræðigreinar, og tekur mið af því sem textinn hefur fram að færa og hvað það hefur í för með sér.

 

Lestur - Greining

Lágmark - Ber kennsl á þætti texta (t.d. inntak, uppbyggingu, eða tengsl hugmynda í textanum) nægilega vel til að geta svarað þeim spurningum sem settar eru fram í verkefninu.

Annar áfangi - Áttar sig á tengslum á milli tiltekinna hluta eða þátta texta, t.d. áhrifarík og máttlaus röksemdafærslu eða áhrif málfarseinkenna og skoðar hvernig þessir þættir hafa áhrif á skilning á textanum í heild sinni.

Þriðji áfangi - Ber kennsl á tengsl milli hugmynda, uppbyggingar texta og annara einkenna textans í þeim tilgangi  að meta hvernig þessir þættir styðja við aukinn skilning á textanum í heild sinni.

Framúrskarandi - Leggur mat á mismunandi nálganir við að tengja hugmyndir, uppbyggingu eða önnur einkenni texta í þeim tilgangi að byggja upp þekkingu eða innsýn bæði  innan texta og og þvert á texta og fræðasvið.

 

Lestur - Túlkun

Lágmark - Áttar sig á mismunandi tilgangi lesturs en reiðir sig á skýr fyrirmæli frá kennara.

Annar áfangi - Sýnir fram á getu til að lesa meðvitað og getur valið sér ákveðna aðferð við túlkun eftir því hver tilgangurinn er með lestrinum.

Þriðji áfangi - Tjáir skilning sinn á margs konar nálgunum við lestur og margvíslegum túlkunarleiðum innan síns fræðasviðs eða tiltekinna samfélagshópa.

Framúrskarandi - Sýnir fram á kunnáttu í lestri út frá þekkingarfræðilegu sjónarhorni en getur líka lagt stund á lestur sem er liður í viðvarandi  samræðu innan sem utan fræðasviðsins eða tiltekinna samfélaghópa.

 

Lestur - Rödd lesanda

Lágmark - Gerir athugasemdir við texta sem bera vott um skilning á textanum og tengsl hans við verkefnið.

Annar áfangi - Tekur þátt í skipulegum umræðum um texta (svo sem í skólastofu) og á þar með þátt í að styrkja sameiginlegan grunnskilningi á textanum.

Þriðji áfangi - Útskýring á  texta (með túlkun eða spurningum) er til þess fallin að dýpka eða styrkja umræðuna.

Framúrskarandi - Ræðir texta og tekur  sjálfstæða  vitsmunalega og siðferðilegra afstöðu sem er  til þess fallin að leiða áfram eða eiga þátt í fræðilegri umræðu.