Læsi á megindleg gögn
Læsi á megindleg gögn – einnig þekkt sem talnalæsi – er hugsunarháttur/hugsanagangur (e. habit of mind), hæfni og færni í að vinna með talnagögn. Einstaklingar sem eru vel læsir á megindleg gögn búa yfir rökhugsun og getu til að leysa margvísleg megindleg vandamál í raunverulegum og hversdagslegum aðstæðum. Þeir skilja og geta fært fram vel ígrunduð rök, studd megindlegum gögnum og geta sett þessi rök fram á margs konar sniði (í orðum, línuritum, stærðfræðijöfnum, o.s.frv. eftir því hvað á við)
Læsi á megindleg gögn - undirhæfni
- Túlkun
- Kynning
- Útreikningur
- Beiting/greining
- Forsendur
- Samskipti
Læsi á megindleg gögn - Túlkun
Lágmark - Gerir tilraun til að skýra upplýsingar sem settar eru fram á stæðrfæðilegu formi en dregur rangar ályktanir um hvað þessar upplýsingar merkja. Til dæmis, reynir að skýra leitni sem línuritið gefur til kynna en mistúlkar um hvers konar hneigð er að ræða, t.d. með því að ruglast á jákvæðri og neikvæðri hneigð.
Annar áfangi - Setur fram að sumu leyti nákvæma útskýringu á upplýsingum sem settar eru fram á stæðfræðilegu formi en gerir af og til minni háttar mistök sem tengjast útreikningi eða einingum. Til dæmis, skýrir vel leitni í línuriti en gæti hafa reiknað hallatöluna skakkt.
Þriðji áfangi - Setur fram nákvæma útskýringu á upplýsingum sem settar eru fram á stæðfræðilegu formi. Til dæmis, skýrir vel leitni sem kemur fram á línuriti.
Framúrskarandi - Setur fram nákvæma útskýringu á upplýsingum sem settar eru fram á stæðfræðilegu formi. Dregur viðeigandi ályktanir út frá þeim upplýsingum. Til dæmis, skýrir vel leitni sem kemur fram á línuriti og dregur skynsamlegar ályktanir um hvað gögnin segja um framtíðarþróun.
Læsi á megindleg gögn - Kynning
Lágmark - Leggur fram upplýsingar með stærðfræðilegum hætti en umskráningin er ekki viðeigandi eða ónákvæm.
Annar áfangi - Leggur upplýsingar fram með stærðfræðilegum hætti en umskráningin er ónákvæm eða aðeins að hluta til viðeigandi.
Þriðji áfangi - Sýnir hæfni til að umskrá viðkomandi upplýsingar og setja þær fram á viðeigandi stærðfræðilegan hátt.
Framúrskarandi - Sýnir kunnáttu og færni í að umskrá viðkomandi upplýsingar og setja þær fram á stærðfræðilegan hátt sem veitir innsæi og stuðlar að dýpri skilningi.
Læsi á megindleg gögn - Útreikningur
Lágmark - Útreikningar eur gerðir en hvorki fullnægjandi né rétt reiknaðir.
Annar áfangi - Útreikningar eru annað hvort aðeins að hluta til rétt reiknaðir til eða ekki nægilega yfirgripsmiklir til að leysa verkefnið.
Þriðji áfangi - Útreikningar takast í meginatriðum vel og eru nægilega yfirgripsmikilir til að leysa verkefnið.
Framúrskarandi - Útreikningar eru í meginatriðum vel heppnaðir og nægilega yfirgripsmikilir til að leysa verkefnið. Útreikningar eru líka vel fram settir (skýrir, hnitmiðaðir, o.s.frv).
Læsi á megindleg gögn - Beiting/greining
Lágmark - Beitir megindlegri gagnagreiningu til að leggja grunn að einfaldri ályktun sem gerð er með fyrirvara og er hikandi við að nota greininguna til að komast að niðurstöðu.
Annar áfangi - Beitir megindlegri gagnagreiningu til að leggja grunn að röklegri ályktun (án innblásturs, blæbrigða eða frumleika) og notar greininguna til að komast að mögulegri niðurstöðu.
Þriðji áfangi - Beitir megindlegri gagnagreiningu til að leggja grunn að ályktun sem stenst og notar geininguna til að komast að ásættanlegri niðurstöðu.
Framúrskarandi - Beitir megindlegri gagnagreiningu til að leggja grunn að vel ígrundaðaðri ályktun og notar greininguna til að komast að glöggum og vönduðum niðurstöðum.
Læsi á megindleg gögn - Forsendur
Lágmark - Gerir tilraun til að að gera grein fyrir forsendum.
Annar áfangi - Gerir grein fyrir forsendum.
Þriðji áfangi - Gerir grein fyrir forsendum og færir sannfærandi rök fyrir hvers vegna tilteknar forsendur eru viðeigandi.
Framúrskarandi - Gerir grein fyrir forsendum og færir sannfærandi rök fyrir hvers vegna tilteknar forsendur eiga við. Er meðvitaður um að trúverðugleiki lokaniðurstöðu takmarkast af nákæmni forsendna sem gengið er út frá.
Læsi á megindleg gögn - Samskipti
Lágmark - Kynnir efnisyfirlýsingu sem mætti styrkja með notkun megindlegra gagna en notar ekki viðeigandi tölfræðilegan stuðning. (notar e.t.v.hugtök sem eru hálf-megindleg líkt og „mörg,“ „fá,“ „í auknum mæli“ o.s.frv. fremur en nákvæm tölfræðihugtök.)
Annar áfangi - Notar megindleg gögn en tekst ekki að tengja þau nægilega vel við efnisyfirlýsingu eða tilgang verkefnis.
Þriðji áfangi - Notar megindleg gögn í tengslum við efnisyfirlýsingu eða tilgang verkefnis en gæti sett gögnin fram á áhrifaríka sniði og liðir í útskýringum eru misgóðir.
Framúrskarandi - Notar megindleg gögn í tengslum við efnisyfirlýsingu eða tilgang verkefnis og setur þau fram á áhrifaríku sniði og útskýringar eru vandaðar.