Þvermenningarlegt læsi
Þvermenningarlegt læsi er skilningur, viðhorf, hæfni og samsemd sem gerir einstaklingi mögulegt að taka virkan þátt í lífi og starfi í fjölmenningarlegum aðstæðum.
Þvermenningarlegt læsi - undirhæfni
- Þekking: Menningarbundin sjálfsvitund
- Þekking á grunnþáttum menningarbundins skilnings
- Færni: Samkennd
- Færni: Yrt samskipti og óyrt samskipti / Samskipti með og án orða
- Viðhorf: Forvitni
- Viðhorf: Víðsýni
Þvermenningarlegt læsi - Þekking: Menningarbundin sjálfsvitund
Lágmark - Sýnir takmarkaðan skilning á menningarbundnum siðareglum og hneigðum (e. biases) í eigin menningu (á líka við um þá hópa sem viðkomandi tilheyrir). Á erfitt með að sjá mögulegan menningarmun hjá öðrum.
Annar áfangi - Áttar sig á menningarbundnum siðareglum og hneigðum (e. biases) í eigin menningu (t.d. setur siðareglur og hneigðir/skoðanir (e. biases) eigin menningarhóps í forgang og býst við að aðrir geri það).
Þriðji áfangi - Viðurkennir ný sjónarmið hvað varðar menningarbundnar siðareglur og hneigðir (e. biases) í eigin menningu (t.d. sækist nemandi ekki eftir einsleitni, á auðvelt með að takast á flókin mál sem ný sjónarmið hafa í för með sér).
Framúrskarandi - Lýsir innsýn í eigin menningarbundnar siðareglur/viðmið og hneigðir (t.d. leitar að margbreytileika, er meðvitaður um hvernig eigin reynsla og annarra hefur mótað reglurnar/viðmiðin og hvernig bera megi kennsl á og bregðast við menningarbundnum hneigðum eða skoðunum, og þetta hefur í för með sér breytingu á sjálfslýsingu).
Þvermenningarlegt læsi - Þekking á grunnþáttum menningarbundins skilnings
Lágmark - Hefur yfirborðslegan skilning á hversu flóknir þeir þættir sem eru mikilvægir fyrir þá sem tilheyra annarri menningu og að þeir tengjast sögu, gildium, pólitík, samskiptaháttum, hagkerfi, eða trú og venjum.
Annar áfangi - Sýnir fram á að hann skilji að hluta til hversu flóknir þeir þættir sem eru mikilvægir fyrir þá sem tilheyra annarri menningu og að þeir tengjast sögu, gildium, pólitík, samskiptaháttum, hagkerfi, eða trú og venjum.
Þriðji áfangi - Sýnir fullnægjandi skilning á hversu flóknir þeir þættir sem eru mikilvægir fyrir þá sem tilheyra annarri menningu og að þeir tengjast sögu, gildium, pólitík, samskiptaháttum, hagkerfi, eða trú og venjum.
Framúrskarandi - Sýnir góðan skilning á hversu flóknir þeir þættir sem eru mikilvægir fyrir þá sem tilheyra annarri menningu og að þeir tengjast sögu, gildium, pólitík, samskiptaháttum, hagkerfi, eða trú og venjum.
Þvermenningarlegt læsi - Færni: Samkennd
Lágmark - Kemur auga á reynslu annarra en túlkar hana út frá eigin heimssýn.
Annar áfangi - Ber kennsl á ákveðna þætti í annars konar menningarviðmiðum en bregst alltaf við þeim með eigin heimssýn.
Þriðji áfangi - Viðurkennir vitsmuna- og tilfinningalegar víddir í ólíkri heimssýn menningarhópa og byggir stundum á meira en einni heimssýn í samskiptum.
Framúrskarandi - Byggir á eigin þvermenninningarlegri reynslu, tekur til greina meira en eina heimssýn og sýnir færni til að vinna með öðrum menningarhópum með skilningi, á stuðningsríkan hátt.
Þvermenningarlegt læsi - Færni: Yrt samskipti og óyrt samskipti / Samskipti með og án orða
Lágmark - Hefur lágarks skilning á menningarmun í munnlegum eða óyrtum samskiptum og er ófær um að stuðla að sameiginlegum skilningi þvert á menningarheima.
Annar áfangi - Ber kennsl á ákveðin menningarmun sem kemur fram í munnlegum samskiptum og samskiptum án orða og er meðvitaður um að þetta getur valdið misskilningi en er ófær um að stuðla að sameiginlegum skilningi þvert á menningarheima.
Þriðji áfangi - Skilur og tekur þátt í mismunandi menningarheimum, með orðum og án orða og er farinn að vinna að samkomulagi sem tekur mið af menningarmun.
Framúrskarandi - Lýsir margþættum skilningi sínum á menningarmun í yrtum sem óyrtum samskiptum (t.d. sýnir fram á skilning á að hvaða marki líkamleg snerting er notuð samskiptum í mismunandi menningarheimum eða á notkun beinnar og óbeinnar eða augljósrar og dulinnar merkingar) og getur beitt þessari færni til að semja af lagni um samkomulag sem tekur mið af þessum mismun.
Þvermenningarlegt læsi - Viðhorf: Forvitni
Lágmark - Sýnir lítinn áhuga á að fræðast um aðra menningarheima.
Annar áfangi - Spyr einfaldra eða yfirborðslegra spurninga um aðra menningarheima.
Þriðji áfangi - Spyr djúpra spurninga um aðra menningarheima og leitar svara við þeim.
Framúrskarandi - Spyr margslunginna spurninga um aðra menningarheima, leitar svara og setur þau fram þannig að þau endurspegla fjölþætt menningarbundin viðhorf.
Þvermenningarlegt læsi - Viðhorf: Víðsýni
Lágmark - Móttækilegur fyrir því að eiga samskipti við fólk með annars konar menningarbakgrunn. Á erfitt með að halda aftur af fordómum sínum og er ómeðvitaður um eigin fordóma í samskiptum sínum við aðra menningarhópa.
Annar áfangi - Nemandi er víðsýnn í samskiptum sínum við flesta, ef ekki alla með annan menningarbakgrunn. Á erfitt með að halda aftur af ákveðnum fordómum í samskiptum við fólk með annan menningarbakgrunn en áttar sig áeigin fordómum og leitast við að bæta sig.
Þriðji áfangi - Er byrjaður að eiga frumkvæði að samskiptum við fólk með annars konar menningarbakgrunn og að þróa þau samskipti. Reynir að forðast fordóma í samskiptum sínum við aðra menningarhópa.
Framúrskarandi - Hefur frumkvæði að og þróar samskipti við fólk með annars konar menningarbakgrunn. Forðast fordóma í samskiptum sínum við fólk með annan menningarbakgrunn.