Heildrænt nám

Heildrænt nám er skilningur og gildi sem mótast hjá nemanda við skólagöngu bæði í námi og með þátttöku í félagsstarfi (e. co-curriculum) og felur í sér allt frá því að tengja milli hugmynda og reynslu yfir í að tengja saman/samþætta það sem nemandi hefur lært og yfiræra þekkinguna og beita henni við nýjar og krefjandi aðstæður, jafnt innan skóla sem utan.

 

Heildrænt nám - undirhæfni

  • Tenging við reynslu
  • Tenging við fræðasvið
  • Yfirfærsla
  • Samþætt samskipti
  • Ígrundun og sjálfsmat

 

Heildrænt nám - Tenging við reynslu

Lágmark - Nemandi áttar sig á tengslum milli lífsreynslu sinnar og þátta í námsefni og hugmyndum sem honum finnst sambærileg og tengjast áhugasviði hans.

Annar áfangi - Nemandi ber saman lífsreynslu og akademíska þekkingu til að álykta um mun og líkindi, og áttar sig á öðrum sjónarmiðum en sínum.

Þriðji áfangi - Nemandi velur og þróar áhrifarík dæmi um lífsreynslu í mismunandi samhengi (t.d. fjölskyldulífi, samfélagsþátttöku, listsköpun, starfsreynslu) og notar þau til að varpa ljósi á hugtök/kenningar/fræðasvið.

Framúrskarandi - Nemandi tengir á merkingarbæran hátt ýmiss konar reynslu utan formlegs skólanáms (undir þetta fellur
lífsreynsla og akademísk reynsla eins og dvalir erlendis og starfsnám) til að dýpka eigin skilning á fræðasviðum og víkka sjónarmið sín.

 

Heildrænt nám - Tenging við fræðasvið

Lágmark - Nemandi segir frá dæmum, staðreyndum eða kenningum af meira en einu fræðasviði eða sjónarhorni þegar hann er beðinn um það.

Annar áfangi - Nemandi tengir saman dæmi, staðreyndir eða kenningar af meira en einu fræðasviði eða sjónarhorni þegar hann er beðinn um það.

Þriðji áfangi - Nemandi tengir saman að eigin frumkvæði dæmi, staðreyndir eða kenningar af meira en einu fræðasviði eða sjónarhorni.

Framúrskarandi - Nemandi skapar að eigin frumkvæði heild úr mörgum þáttum (samþættir/tengir) eða dregur ályktanir með
því að tengja dæmi, staðreyndir eða kenningar af meiraen einu fræðasviði eða sjónarhorni.

 

Heildrænt nám - Yfirfærsla

Lágmark - Nemandi beitir á einfaldan hátt færni, getu, kenningum eða aðferðafræði sem hann hefur lært í tilteknum aðstæðum við nýjar aðstæður.

Annar áfangi - Nemandi beitir þeirri færni, getu, kenningum eða aðferðafræði sem hann hefur lært í tilteknum aðstæðum til að stuðla að skilningi á vandamálum og viðfangsefnum í nýjum aðstæðum.

Þriðji áfangi - Að eigin frumkvæði aðlagar nemandi þá færni, getu, kenningar eða aðferðafræði sem hann hefur lært í tilteknum aðstæðum þannig að þau henti til að leysa vandamál eða kanna viðfangsefni í nýjum aðstæðum.

Framúrskarandi - Að eigin frumkvæði aðlagar nemandi þá færni, getu, kenningar eða aðferðafræði sem hann hefur lært í tilteknum aðstæðum þannig að þau henti til að leysa erfið vandamál eða kanna flókin viðfangsefni með frumlegum hætti í nýjum
aðstæðum.

 

Heildrænt nám - Samþætt samskipti

Lágmark - Notar viðeiganddi málsnið við úrlausn verkefnis (t.d. að gera ritgerð, veggspjald, myndband, glærusýningu).

Annar áfangi - Leysir verkefnið með því að velja málsnið, orðalag eða myndræna framsetningu af einhverju tagi sem sem tengir á einfaldan hátt milli þess sem koma þarf á framfæri (inntak) og hvernig það er sagt (málsnið).

Þriðji áfangi - Leysir verkefnið með því að velja málsnið, orðalag eða myndræna framsetningu af einhverju tagi sem sem sýnir skilning á tengslum inntaks og forms og að nemandi er meðvitaður um markmið og markhóp.

Framúrskarandi - Leysir verkefnið með því að velja málsnið, orðalag eða myndræna framsetningu af einhverju tagi sem styrkir merkinguna þar sem gagnkvæm tengsl málsniðs, merkingar, hugsana og tjáningar koma skýrt fram.

 

Heildrænt nám - Ígrundun og sjálfsmat

Lágmark - Lýsir eigin frammistöðu með almennri lýsingu á velgengni eða mistökum.

Annar áfangi - Lýsir styrkleikum sínum og áskorunum, sem nemandi hefur reynslu af í tilteknum aðstæðum,
við að bæta árangur sinn í öðrum aðstæðum (með aukinni sjálfsvitund).

Þriðji áfangi - Leggur mat á þróun sína í námi gegnum tíðina og áttar sig á áhrifum flókinna þátta sem eru háðir samhengi (t.d. verk sem sem eru óræð eða fela í sér áhættu, tekst á við óánægju (e. frustration), tekur tillit til siðferðilegra þátta).

Framúrskarandi - Sér fyrir sér framtíðarsjálf sem hefur mótast í margvíslegu og fjölþættu samhengi (og gerir
mögulega framtíðaráætlanir byggðar á fyrri reynslu).