Rannsókn og greining

Rannsókn (e. inquiry) er kerfisbundið ferli sem felst í að kanna viðfangsefni, málefni eða verkefni með söfnun og greiningu á gögnum og lýkur með upplýstri niðurstöðu eða afstöðu.
Greining er ferli þar sem flókin viðfangsefni eða vandamál eru brotin upp í smærri þætti til að öðlast betri skilning á þeim.

 

Rannsókn og greining - undirhæfni

  • Val á viðfangsefni
  • Fyrirliggjandi þekking, rannsóknir og/eða skoðanir
  • Hönnunarrferli
  • Greining
  • Niðurstöður
  • Takmarkanir og afleiðingar

 

Rannsókn og greining - Val á viðfangsefni

Lágmark - Nemandi velur viðfangsefni sem er of almennt og víðfeðmt til að vera viðráðanlegt eða gerlegt.

Annar áfangi - Nemandi velur viðfangsefni sem er viðráðanlegt en afmarkar það of þröngt og skilur eftir atriði sem skipta máli.

Þriðji áfangi - Nemandi velur vel afmarkað og viðráðanlegt viðfangsefni sem tekur með viðeigandi hætti á þeim hliðum viðfangsefnisins sem skipta máli.

Framúrskarandi - Nemandi velur skapandi, vel afmarkað og viðráðanlegt viðfangsefni sem fæst við áður lítt- rannsakaðar en hugsanlega þýðingarmiklar hliðar viðfangsefnisins.

 

Rannsókn og greining - Fyrirliggjandi þekking, rannsóknir og/eða skoðanir

Lágmark - Nemandi fjallar um upplýsingar úr heimildum sem eiga ekki við og einskorðast við ákveðin sjónarmið eða nálganir.

Annar áfangi - Nemandi fjallar um upplýsingar úr viðegiandi heimildum en sem einskorðast við tiltekin sjónarmið eða nálganir.

Þriðji áfangi - Nemandi segir frá ítarlegum upplýsingar úr viðeigandi heimildum sem sýna fjölbreytt sjónarmið eða nálganir.

Framúrskarandi - Nemandi samþættir ítarlegar upplýsingar úr viðeigandi heimildum sem sýna fjölbreytt sjónarmið eða nálganir.

 

Rannsókn og greining - Hönnunarrferli

Lágmark - Hönnun rannsóknar bendir til misskilnings á aðferðafræði eða fræðilegum ramma.

Annar áfangi - Grunnstoðir aðferðafræði eða fræðilegs ramma vantar, eru rangt fram settar eða vantar skýran fókus.

Þriðji áfangi - Grunnstoðir aðferðafræði eða fræðilegs ramma eru settar fram með viðeigandi hætti, en litið fram hjá eða ekki gert ráð fyrir nákvæmnari þáttum þeirra.

Framúrskarandi - Allir þættir aðferðafræði eða fræðilegs ramma eru þróaðir af kunnáttu. Mögulega er viðeigandi aðferðafræði eða faglegur rammi annara fræðasviða samþættur aðferðafræði viðkomandi fræðasviðs þar sem við á.

 

Rannsókn og greining - Greining

Lágmark - Nemandi gerir grein fyrir upplýsingum en þær eru óskipulagðar eða vantar fókus.

Annar áfangi - Nemandi skipuleggur upplýsingar en tekst ekki að leiða í ljós mynstur, álitamál eða líkindi í mismunandi áherslum.

Þriðji áfangi - Nemandi skipuleggur upplýsingar og leiðir í ljós mynstur, álitamál eða líkindi í mismunandi áherslum.

Framúrskarandi - Nemandi skipuleggur og samþættir upplýsingar af innsýn og leiðir í ljós mynstur, álitamál eða líkindi í mismunandi áherslum.

 

Rannsókn og greining - Niðurstöður

Lágmark - Framsetning niðurstöðu er óljós, órökrétt eða byggir ekki á útkomu rannsóknar.

Annar áfangi - Setur niðurstöðu fram með almennum hætti og vegna þess hversu almenn hún er getur hún átt við um það sem rannsóknin snerist ekki um.

Þriðji áfangi - Setur fram niðurstöðu byggða á útkomu rannsóknar. Niðurstöðurnar snúast beint um útkomu rannsókna án ályktana.

Framúrskarandi - Setur fram niðurstöðu sem er rökrétt ályktun byggð á útkomu rannsóknar.

 

Rannsókn og greining - Takmarkanir og afleiðingar

Lágmark - Nefnir hugsanlegar takmarkanir og afleiðingar en þær eiga mögulega ekki við umrædda rannsókn eða eru órökstuddar.

Annar áfangi - Nefnir hugsanlegar takmarkanir og afleiðingar umræddrar rannsóknar og færir rök fyrir þeim.

Þriðji áfangi - Ræðir takmarkanir og hugsanlegar afleiðingar umræddrar rannsóknar og færir rök fyrir þeim.

Framúrskarandi - Ræðir af innsæi og nákvæmni viðeigandi takmarkanir og hugsanlegar afleiðingar og færir góð rök fyrir þeim.