Málstofa: Gervigreindarverkfæri fyrir kennara
14:00 til 15:30
Vinnustofan fer fram á ensku.
Þessi málstofa fer fram á ensku.
Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að bjóða upp á þessa málstofu aftur.
Vertu með fimmtudaginn 10. október á málstofu um gervigreindarverkfæri fyrir kennara, þar sem við munum kanna stöðu gervigreindar í menntun og prófa nokkur ókeypis gervigreindarverkfæri sem eru hönnuð til að styðja við kennsluhætti. Þessi málstofa er tilvalin fyrir kennara sem hafa áhuga á að nýta gervigreindarverkfæri í sína kennslu.
Boðið verður uppá streymi í gegnum Zoom. Tengill verður sendur út þegar nær dregur. Þau sem ætla að taka þátt í gegnum streymi þurfa ekki að skrá sig á viðburðin, aðeins þau sem ætla að mæta á staðin.
Upplýsingar um málstofu:
- Dagsetning: Fimmtudagur 10. október.
- Tímasetning: 14:00 - 15:30
- Staðsetning: Suðurberg 3. hæð, Setberg. Streymi í gegnum Zoom.
- Hvað á að koma með: Mælt er með að koma með fartölvu með sér
Við hverju má búast:
- Yfirlit: Skoðum núverandi landslag gervigreindar í menntun, með áherslu á hvernig kennarar geta notið góðs af gervigreindarverkfærum.
- Reynsla af fyrstu hendi: Þátttakendur munu fá tækifæri til að prófa ókeypis gervigreindarverkfæri fyrir kennara.
- Sérfræðiaðstoð: Leiðbeiningar um hvernig á að innleiða þessi verkfæri á áhrifaríkan hátt í kennslu.
Hápunktar málstofu:
- Kynning á gervigreindarverkfærum sem geta eflt kennslu
- Innsýn í hagnýta notkun gervigreindar í menntaumhverfi
- Hagnýt reynsla af völdum verkfærum
Umsjónarmaður málstofunnar er Bethany Louise Rogers, verkefnisstjóri hjá Kennslumiðstöð.
Við hlökkum til að sjá þig!
Bestu kveðjur,
Kennslumiðstöð Háskóla Íslands