Munnleg samskipti

Munnleg samskipti eru undirbúin merkingarbær frásögn sem ætlað er að auka þekkingu og skilning eða stuðla að breytingu á viðhorfi, gildum eða hegðun áheyrenda.

Munnleg samskipti - undirhæfni

  • Skipulag
  • Málfar
  • Framsetning
  • Stuðningsefni
  • Megininntak

 

Munnleg samskipti - Skipulag

Lágmark - Skipulag (skilmerkilegur inngangur og niðurlag,  uppröðun efnis í meginmáli skýr og gott flæði á milli kafla) er óskýrt í kynningunni.

Annar áfangi - Skipulag (skilmerkilegur inngangur og niðurlag,  uppröðun efnis í meginmáli skýr og gott flæði á milli þátta) er stundum en ekki alltaf skýrt í kynningunni.

Þriðji áfangi - Skipulag (skilmerkilegur inngangur og niðurlag, uppröðun efnis í meginmáli skýr og gott flæði á milli þátta) er skýrt og greinilegt samræmi í kynningunni.

Framúrskarandi - Skipulag (skilmerkilegur inngangur og niðurstaða, uppröðun efnis í meginmál skýr og gott flæði á milli þátta) er skýrt og greinilegt og kunnáttusamlega útfært sem skapar gott samhengi í kynningunni

 

Munnleg samskipti - Málfar

Lágmark - Málfar er óljóst og og er lítt til þess fallið að styðja við kynninguna. Málfar hæfir ekki áheyrandahópnum.

Annar áfangi - Málfar er almennt og hversdagslegt en styður að einhverju leyti við áhrif kynningar. Málfar hæfir áheyrandahópnum.

Þriðji áfangi - Málfar er vandlega valið og styður almennt vel við áhrif kynningar. Málfarið hæfir áheyrandahópnum.

Framúrskarandi - Málfar er skapandi, eftirminnilegt, sannfærandi og á þátt í að gera kynninguna áhrifaríka. Málfarið hæfir áheyrandahópnum.

 

Munnleg samskipti - Framsetning

Lágmark - Tjáning (líkamsstaða, líkamstjáning, augnsamband og raddbeiting) dregur úr skiljanleika kynningar og mælandi virðist óöruggur.

Annar áfangi - Tjáning (líkamsstaða, líkamstjáning, augnsamband og raddbeiting)  stuðlar að því að gera kynninguna skiljanlega en mælandi virðist hikandi.

Þriðji áfangi - Tjáning (líkamsstaða, líkamstjáning, augnsamband og raddbeiting) stuðlar að því að gera kynninguna áhugaverða og mælandi hvílir vel í sjálfum sér.

Framúrskarandi - Tjáning (líkamsstaða, líkamstjáning, augnsamband og raddbeiting) stuðlar að því að gera kynninguna sannfærandi og mælandi virðist fágaður og sjálfsöruggur.

 

Munnleg samskipti - Stuðningsefni

Lágmark - Ófullnægjandi stuðningsefni (útskýringar, dæmi, skýringarmyndir, tölfræði, hliðstæður, tilvitnanir í viðeigandi heimildir), vísað til upplýsinga eða greininga sem styðja að litlu leyti við kynninguna eða trúverðugleika mælanda.

Annar áfangi - Stuðningsefni (útskýringar, dæmi, skýringarmyndir, tölfræði, hliðstæður, tilvitnanir í viðeigandi heimildir) er viðeigandi og upplýsingar eða greiningar í stuðningefninu styðja að einhverju leyti við kynninguna og trúverðugleika mælanda í umfjöllun  um efnið.

Þriðji áfangi - Stuðningsefni (útskýringar, dæmi, skýringarmyndir, tölfræði, hliðstæður, tilvitnanir í viðeigandi heimildir) er viðeigandi og upplýsingar eða greiningar í stuðningsefninu styðja almennt við kynninguna eða benda til trúverðugleika mælanda í umfjöllun um efnið.

Framúrskarandi - Fjölbreytt stuðningsefni (útskýringar, dæmi, skýringarmyndir, tölfræði, hliðstæður, tilvitnanir í viðeigandi heimildir/áhrifavaldar) er viðeigandi og upplýsingar eða greiningar í stuðningsefninu  styðja verulega við kynninguna eða staðfesta trúverðugleika mælanda í umfjöllun um efnið.

 

Munnleg samskipti - Megininntak

Lágmark - Hægt er að átta sig á megininntaki en framsetning er óskýr í kynningunni.

Annar áfangi - Megininntak er að mestu skiljanlegt en vantar viðeigandi endurtekningu til áherslu og er ekki eftirminnilegt.

Þriðji áfangi - Megininntak er skýrt og í góðu samhengi við stuðningsefni.

Framúrskarandi - Megininntak er sannfærandi (sett fram með skýrum hætti, endurtekningar eru viðeigandi, eftirminnilegt og mjög vel rökstutt).