Header Paragraph

María Kristín Bjarnadóttir nýr Deildarstjóri Kennslumiðstöðvar HÍ

Image

María Kristín Bjarnadóttir tók við sem nýr Deildarstjóri Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands í júní 2024. Hún tók við starfinu af Hólmfríði Jennýar Árnadóttur fyrrum deildarstýru Kennslumiðstöðvar sem færði sig um starfsvettvang eftir farsælan starfsferil við Háskóla Íslands.

Kennslusvið óskar Maríu Kristínu innilega til hamingju með nýja starfið og hlakkar til áframhaldandi ánægjulegs samstarfs.

Á sama tíma viljum við þakka Hólmfríði fyrir ánægjulegt samstarf síðustu árin og óskum henni alls hins besta á nýjum vettvangi.