Hlaðvarpsupptökur sem námsefni (IS)

Image
HVENÆR
3. október 2024
14:00 til 15:00
HVAR
Setberg
Suðurberg 3 hæð
NÁNAR

Vinnustofan fer fram á íslensku. 

Fimmtudaginn 3. október munum við bjóða uppá námskeið um Hlaðvarpsupptökur sem námsefni.  

Námskeiðið fjallar um það hvernig hægt er að nýta hlaðvörp í kennslu. Farið verður í hvaða tegundir hlaðvarpa henta sem námsefni, æskilega lengd slíkra hlaðvarpa og umfjöllunarefni. Gert er ráð fyrir opnum umræðum og að auki farið yfir tæknileg atriði eins og hvernig er best að taka upp og deila efni.   

Upplýsingar um vinnustofu:

  • Dagsetning: Fimmtudagur, 3. október.
  • Tímasetning: 14:00 - 15:00
  • Staðsetning: Suðurberg 3. hæð, Setberg
  • Hvað á að koma með: Mælt er með að koma með fartölvu með sér

Umsjónarmaður námskeiðsins er Rúnar Sigurðsson.

 

Skráning fer fram hér.

Við hlökkum til að sjá þig! 

Bestu kveðjur,
Kennslumiðstöð Háskóla Íslands