Grunnstoðir símenntunar

Símenntun er viðvarandi meðvitað nám sem  stundað er alla ævi í þeim tilgangi að auka þekkingu, færni og hæfni. Háskólar leitast við að undirbúa nemendur undir að stunda nám alla ævi með því að ýta undir tiltekna hæfni og viðhorf í háskólanáminu.

Símenntun - undirhæfni

  • Forvitni
  • Frumkvæði
  • Sjálfstæði
  • Yfirfærsla
  • Ígrundun

 

Símenntun - Forvitni

Lágmark - Yfirborðsleg rannsókn á viðfangsefninu, lítil innsýn eða upplýsingar umfram þekktar staðreyndir benda til lítils áhuga á viðfangsefninu.

Annar áfangi - Rannsókn viðfangsefnis ber einhver merki um dýpt sem er til marks um einhverja innsýn og/eða upplýsingar sem gefa til kynna smávegis áhuga á viðfangsefninu.

Þriðji áfangi - Viðfangsefnið er ítarlega rannsakað og skilar sér í  innsýn og/eða upplýsingum sem eru til marks um áhuga á viðfangsefninu.

Framúrskarandi - Viðfangsefnið er ítarlega rannsakað og afraksturinn er djúpstæður skilningur og/eða dregnar fram áður lítt þekktar upplýsingar sem eru til marks um mikinn áhuga á viðfangsefninu.

 

Símenntun - Frumkvæði

Lágmark - Lýkur  verkefnum sem lögð eru fyrir.

Annar áfangi - Lýkur  verkefnum sem lögð eru fyrir og ber kennsl á tækifæri til að auka þekkingu sína, hæfni og getu.

Þriðji áfangi - Lýkur  verkefnum sem lögð eru fyrir, ber kennsl á og sækist eftir tækifærum til að auka þekkingu sína, hæfni og getu.

 

Framúrskarandi - Lýkur verkefnum sem lögð eru fyrir, skapar og sækist eftir tækifærum til að auka þekkingu sína, hæfni og getu.

 

Símenntun - Sjálfstæði

Lágmark - Nemandi er  farinn að sýna áhuga á að afla sér þekkingar á eigin spýtur, umfram það sem skólinn gerir kröfu um.

Annar áfangi - Aflar þekkingar umfram við þær kröfur sem skólinn gerir og/eða sýnir áhuga á sjálfstæðum námstækifærum.

Þriðji áfangi - Aflar sér verulegrar þekkingar umfram þær kröfur sem skólinn gerir og/eða er virkur í að sækjast eftir sjálfstæðum námstækifærum. 

Framúrskarandi - Áhugi á náminu er greinilegur og kemur í ljós og nýtur sín í verkefnaskilum umfram þær kröfur sem skólinn  gerir. Sækist eftir þekkingu og reynslu að eigin frumkvæði.

 

Símenntun - Yfirfærsla

Lágmark - Vísar óljóst til fyrra náms en nýtir þá þekkingu og hæfni ekki til skilnings eða til að bæta frammistöðu í nýjum aðstæðum.

Annar áfangi - Vísar til fyrra náms og gerir tilraun til að nýta þá þekkingu og hæfni til skilninsg og til að bæta frammistöðu í nýjum aðstæðum.

Þriðji áfangi - Vísar til fyrra náms og sýnir dæmi um hvernig sú þekking og hæfni nýtist til skilnings og til að bæta frammistöðu í nýjum aðstæðum.

Framúrskarandi - Vísar greininlega til fyrra náms og notar þá þekkingu og hæfni með nýstárlegum hætti (á nýjan og skapandi hátt) til skilnings og til að bæta frammistöðu sína í nýjum aðstæðum.

 

Símenntun - Ígrundun

Lágmark - Nemandi fer yfirborðslega yfir fyrra nám (fyrri reynslu innan og utan veggja skólastofunnar) sem endurspeglar ekki skýrari skilning eða aukna víðsýni er varðar menntun eða atburði í lífinu. 

Annar áfangi - Fer ágætlega yfir fyrra nám (fyrri reynslu innan og utan veggja skólastofunnar) sem endurspeglar örlítið skýrari skilning eða aukna víðsýni er varðar mennntu og  atburði í lífinu.

Þriðji áfangi - Fer ítarlega yfir fyrra nám (fyrri reynslu innan og utan veggja skólastofunnar) sem endurspeglar skýran skilning eða aukna víðsýni er varðar menntun og atburði í lífinu.

Framúrskarandi - Fer ítarlega yfir fyrra nám (fyrri reynslu innan og utan veggja skólastofunnar) sem enduspeglar verulega breytt viðhorf hvað snertir menntun og  og lífsreynslu sem er grundvöllur fyrir aukna þekkingu og þroska í framtíðinni.