Gagnrýnin hugsun

Gagnrýnin hugsun er hugsun sem felst í að beita rökhugsun, huga að orsakatengslum og greina hvort röksemdarfærslur eru gildar eða ekki. Markvís hugsun, sem leitar sanninda og metur gildi.

Gagnrýnin hugsun - undirhæfni

  • Útskýring á eða greinargerð um álitamál
  • Gögn
  • Áhrif samhengis og forsenda
  • Afstaða (sjónarhorn, kenning/tilgátur)
  • Niðurstöður og tengdar úrlausnir (afleiðingar og fylgifiskar)

 

Gagnrýnin hugsun - Útskýring á eða greinargerð um álitamál

Lágmark - Álitamálið sem þarf að taka gagnrýna afstöðu til er tilgreint án skýringar eða lýsingar

Annar áfangi - Álitamálinu sem þarf að taka gagnrýna afstöðu til er lýst, en í lýsingunni eru sum hugtök ekki skilgreind, vafaatriði eru ekki skýrð, afmörkun er ekki skýr og/eða baksvið ekki tilgreint.

Þriðji áfangi - Álitamálinu sem þarf að taka gagnrýna afstöðu til er lýst og það útskýrt og engu sleppt sem gæti aftrað skilningi.

Framúrskarandi - Álitamál sem þarf að taka gagnrýna afstöðu til eru sett fram skýrt og skilmerkilega og fylgt eftir með viðeigandi upplýsingum sem þarf til að skilja viðfangsefnið til hlítar.

 

Gagnrýnin hugsun - Gögn

Lágmark - Upplýsingar eru sóttar til heimilda sem nýtast ekkert við túlkun og mat. Sjónarmið sérfræðinga eru að mestu samþykkt sem staðreyndir og ekki dregin í efa.

Annar áfangi - Upplýsingar eru sóttar til heimilda sem bjóða upp á einhverja valkosti við túlkun og mat en ekki nægilega ítarlega til að hægt sé að gera heildstæða greiningu eða komast að niðurstöðu.Sjónarmið sérfræðinga eru að mestu tekin gild sem staðreyndir og ekki dregin í efa nema að litlu leyti.

Þriðji áfangi - Upplýsingar eru sóttar til heimilda sem bjóða upp á nægilega valkosti við túlkun og mat til að hægt sé að þróa sannfærandi greiningu og/eða komast að niðurstöðu. Sjónarmið
sérfræðinga eru rædd á gagnrýninn hátt.

Framúrskarandi - Upplýsingar eru sóttar til heimilda sem bjóða upp á fullnægjandi valkosti við túlkun og mat til að hægt sé að þróa yfirgripsmikla greiningu og/eða komast að niðurstöðu.
Sjónarmið sérfræðinga eru rædd ítarlega á gagnrýninn hátt.

 

Gagnrýnin hugsun - Áhrif samhengis og forsenda

Lágmark - Sýnir vaknandi meðvitund um fyrirliggjandi forsendur (skilgreinir stundum fullyrðingar sem forsendur). Byrjar að tilgreina einhver atriði sem skipta máli í viðkomandi samhengi
þegar afstaða er kynnt.

Annar áfangi - Sumar forsendur eru dregnar í efa. Nokkrur atriði sem skipta máli í viðkomandi samhengi eru tilgreind þegar afstaða er sett fram. Hugsanlega er forsendum annarra gefið meira vægi en eigin forsendum (eða öfugt).

Þriðji áfangi - Gerð er grein fyrir eigin forsendum og annarra og tilgreind nokkur atriði í kringumstæðum eða samhengi sem skipta máli, þegar tekin er afstaða.

Framúrskarandi - Eigin forsendur og annarra eru greindar (kerfisbundið og markvisst) og ítarlegt mat er lagt á vægi kringumstæðna eða samhengis við framsetningu afstöðu.

 

Gagnrýnin hugsun - Afstaða

Lágmark - Sú afstaða sem tekin er (sjónarmið, kenning/tilgáta) er kynnt, en er einföld og augljós.

Annar áfangi - Sú afstaða sem tekin er (sjónarmið, kenning/tilgáta) viðurkennir mismunandi hliðar málsins.

Þriðji áfangi - Sú afstaða sem tekin er (sjónarmið, kenning/tilgáta) tekur mið af því hversu flókið viðfangsefnið er. Sjónarmið annarra eru viðurkennd þegar tekin er afstaða (sjónarmið,
kenning/tilgáta).

Framúrskarandi - Sú afstaða sem tekin er (sjónarmið, kenning/tilgáta) er frjó og tekur mið af því hversu flókið viðfangsefnið er. Takmarkanir afstöðu eru viðurkenndar. Tekið er mið af sjónarmiðum annarra þegar afstaða er tekin.

 

Gagnrýnin hugsun - Niðurstöður og tengdar úrlausnir

Lágmark - Niðurstöður eru í ósamræmi við sumar þeirra upplýsinga sem fjallað er um; tengdar úrlausnir (afleiðingar og fylgikvillar) eru of einfaldaðar.

Annar áfangi - Niðurstöður eru í röklegu samhengi við upplýsingar (vegna þess að upplýsingar eru valdar til að passa við viðkomandi niðurstöðu); sumar tengdar úrlausnir (afleiðingar og fylgikvillar) eru tilgreindar með skýrum hætti.

Þriðji áfangi - Niðurstöður eru í röklegu samhengi við margs konar upplýsingar, þ.m.t. andstæðar skoðanir; tengdar úrlausnir (afleiðingar og fylgikvillar) eru tilgreindar með skýrum hætti.

Framúrskarandi - Niðurstöður og tengdar úrlausnir (afleiðingar og fylgikvillar) eru rökréttar og endurspegla upplýst mat nemandans og færni til að fjalla um gögn og sjónarmið í forgangsröð.