13:00 til 14:30
Viðburðinum verður einnig streymt í gegnum Teams.
Miðvikudaginn 21. febrúar býður Kennslumiðstöð uppá kynningu á FeedbackFruits þar sem farið verður stuttlega yfir tólin 18 sem í boði eru. Kynningin er hugsuð fyrir alla kennara sem hafa áhuga á að nýta FeedbackFruits í kennslu. Tveir sérfræðingar verða á staðnum til að fræða, veita aðstoð og svara spurningum.
Upplýsingar sem farið verður yfir á kynningunni
- Yfirferð um tólin í FeedbackFruits
- Hvernig veljum við rétt tól í FeedbackFruits
- Hvernig setjum við upp FeedbackFruits tól í Canvas
Umsjónarmenn kynningarinnar eru Harpa Dögg Fríðudóttir og María Kristín Bjarnadóttir
Kynningin fer fram 13:00-14:30 í Suðurbergi, 3. hæð í Setbergi. Kynningunni verður einnig streymt í gegnum Teams.
Hægt er að fræðast nánar um tólin í FeedbackFruits í gengum þennan tengil.
Bestu kveðjur,
Canvas teymið
Kennslumiðstöð
