HVENÆR
20. ágúst 2025
13:00 til 14:30
HVAR
Setberg
Suðurberg 3.hæð
NÁNAR

Suðurberg, 3.hæð (6), 19.08.25 kl: 13:00 - Sjá nánar.

Dagana 19 og 20. ágúst mun Kennslumiðstöð bjóða uppá opna vinnustofu í Canvas. Vinnustofan er hugsuð fyrir kennara sem eru að vinna í því að setja upp námskeiðsvefi fyrir komandi misseri. Sérfræðingar verða á staðnum til að veita aðstoð og svara spurningum. 

Dæmi um aðstoð sem kennarar geta fengið í vinnustofunni:   

  • Aðstoð við uppsetningu á verkefnum og vægi verkefnahópa 
  • Aðstoð við að setja upp verkefni í FeedbackFruits 
  • Aðstoð við að flytja efni á milli námskeiða
  • Uppsetning á kennsluáætlun í Canvas 

Vinnustofan verður frá 13:00-14:30 í Suðurbergi 3.hæð í Setbergi. Vinnustofan er opin og geta kennarar komið og farið eftir hentisemi. 

Bestu kveðjur,  
Canvas teymi Kennslumiðstöðvar