Aurora - Kennsla til samfélagslegra áhrifa

Image
Þátttakendur á vinnustofu hlusta á sérfræðinga
HVENÆR
4. október 2023 15:00 til 5. júlí 2024 16:00
HVAR
Setberg
Suðurberg, 3.hæð
NÁNAR

Kennslukaffið verður á stað og á Zoom. 

Þátttaka á Zoom

Aurora - Kennsla til samfélagslegra áhrifa

Í þessu kennslukaffi Kennslumiðstöðvar HÍ verður rætt um Menntasýn Aurora, sem snýst í stuttu máli um að útskrifa nemendur með þá hæfni og færni sem til þarf til að takast á við samfélagslegar áskoranir heimsins. Rauði þráðurinn eru heimsmarkmið SÞ, þverfagleg nálgun, starfshæfni nemenda og alþjóðavæðing náms og kennslu. Til að ná markmiðum sínum hefur Aurora skilgreint kennsluaðferðir og verkfæri fyrir kennara sem vilja tileinka sér nýsköpun í kennslu í anda Aurora.

Menntasýn Aurora og stefna HÍ-26 falla þétt hvor að annarri en í HÍ-26 eru áhersluatriðin einmitt alþjóðatengsl, þverfaglegt starf, nýsköpun og starfshæfni nemenda.

Í kennslukaffinu mun Sandra Berg Cepero, verkefnisstjóri Aurora, útskýra hvað Aurora stendur fyrir, hver hagur kennara er af samstarfinu og helstu atriði kennsluþróunar Aurora.

Kennslukaffið verður á stað og á Zoom. Þeir sem koma á stað eru beðnir að skrá sig vegna veitinga.

Þátttaka á Zoom