ABC vinnustofa

Image
HVENÆR
7. desember 2023
10:00 til 12:00
HVAR
Setberg
Suðurberg
NÁNAR

ABC vinnustofa í námshönnun

Öll velkomin!

 

 

Ertu að fara að endurskoða námskeiðið þitt eða búa til nýtt námskeið? 

Boðið verður upp á ABC vinnustofu um grunnhönnun námskeiða fimmtudaginn 7. des nk. kl. 10.00 – 12:00 í Setbergi – húsi kennslunnar. 

Á ABC vinnustofu vinna kennarar saman í litlum hópum við að búa til sjónrænt söguborð (e. storybord) yfir námskeiðin sín og þá kennsluhætta sem þeir telja vænlegasta til að ná hæfniviðmiðum námsins. ABC aðferðin er sérlega gagnleg þegar verið er færa staðbundna kennslu í fjarnámsform eða þegar verið er að innleiða rafræna kennsluhætti en er ekki síður gagnleg almennt í námskeiðshönnun, kennsluþróun og við endurskoðun námskeiða. 

Nánari upplýsingar um ABC vinnustofur má finna á https://setberg.hi.is/is/abc-vinnustofur 

Kveðja, starfsfólk Kennslumiðstöðvar