Tímasetning: 26. febrúar frá 13:00–16:00
Staðsetning: Suðurberg, stofa 305 (3. hæð í Setbergi)
Kennslufræðileg þróun námskeiða og námsleiða, eða endurhönnun þeirra, er mikilvægur hluti í starfi háskólakennara og ekki síður leita margir leiða til að gera nemendur að virkum þátttakendum í eigin námi og hönnun þess.
Í þessari vinnustofu fá kennarar nýtt verkfæri í hendur sem getur stutt þá við námshönnun og gefur þeim færi á að ræða um kennslu, kennslufræði og kennsluþróun við aðra kennara. Verkfærið gefur einnig möguleika á að virkja nemendur til þátttöku í hönnun eigin náms og kalla fram raddir þeirra í tengslum við nám og kennslu.
Í vinnustofunni spila þátttakendur borðspil, Námshönnunarspilið (Learning Design Game), í litlum hópum sem leiðir til samtals og samvinnu um námsþróun.
Námshönnunarspilið var þróað í samvinnu fimm norrænna háskóla en á þróunarstigum hefur það verið prófað með þverfaglegum hópum kennara í viðkomandi háskólum.
Að verkefninu stendur DLiNC-teymið (Designing for Learning in the Nordic Countries; https://dlinc.dk) sem í eru þau Kolbrún Friðriksdóttir (Háskóla Íslands), Kari Bjørgo Johnsen (Háskólanum í Bergen), Mikkel Godsk (Árósarháskóla), Ola Knutsson (Stokkhólmsháskóla) og Tomi Kauppinen (Aalto-háskóla).
Vinnustofan er kjörinn vettvangur fyrir kennara sem vilja stuðla að auknum gæðum í kennslu og námi. Sjáumst vonandi sem flest!
Vinnustofan fer fram á íslensku.
Skráning fer fram í gegnum Ugluna HÉR