Gervigreind hefur á stuttum tíma orðið hluti af námi, kennslu og rannsóknum við Háskóla Íslands. Á þessum vef finnur þú hagnýtar upplýsingar um hvernig má nýta gervigreind á ábyrgan hátt í háskólasamfélaginu.
Efninu er skipt upp eftir hlutverki og viðfangsefni. Hér getur þú meðal annars fundið leiðbeiningar fyrir nemendur, kennara og rannsakendur, upplýsingar um notkun gervigreindar í námskeiðum og kennslu, og umfjöllun um siðferði, persónuvernd og akademísk vinnubrögð.
Markmið vefsins er að auðvelda fólki að átta sig á hvaða leiðbeiningar gilda, hvar þarf að sýna sérstaka varfærni og hvernig best er að nota gervigreind í starfi og námi við HÍ.
Veldu þann efnisflokk sem á best við þig hér fyrir neðan.
Sjá einnig Gervigreindarstefnu og siðferðileg viðmið Háskóla Íslands hér: Gervigreindarstefnu HÍ