Gervigreind (AI) er orðin hluti af daglegu lífi í háskólanámi. Hún getur nýst þér á margvíslegan hátt, til dæmis við að skipuleggja verkefni, fá hugmyndir og læra betur. Notkuninni fylgja þó ýmsar áskoranir og huga þarf vel að álitaefnum er varða vitsmuni, færni og siðferði.
Ef tæknin er notuð á rangan hátt getur hún unnið gegn markmiðum námsins. Hér á þessum síðum finnur þú leiðbeiningar um takmarkanir tækninnar og hvernig hægt er að nýta gervigreind á ábyrgan hátt í samræmi við reglur Háskóla Íslands.
Þessi síða er í vinnslu! Hér kemur inn meira efni á næstu dögum.