Prófaskrifstofa heldur utan um þjónustu við rafræna prófakerfi Háskóla Íslands, Inspera.
- Kennarar geta nálgast yfirgripsmiklar leiðbeiningar um Inspera í Uglu.
- Prófaskrifstofa heldur reglulega námskeið fyrir kennara um vinnu í Inspera.
- Prófaskrifstofa og stoðþjónustur nokkurra sviða bjóða uppá persónulega þjónustu gegnum fjarfundabúnað. Það er hægt að bóka slíka þjónustu gegnum eftirfarandi tengil: UGLA - Bóka fjar-aðstoð við Inspera
- Deildir eða fræðasvið Háskóla Íslands geta bókað almenna vinnustofu eða um ákveðna hluti kerfisins gegnum eftirfarandi tengil: UGLA - Bóka Inspera vinnustofu
- Heimapróf - gagnapróf (e. open book)í opnu umhverfi.
- Staðpróf:
- Gagnapróf (e. open-book) án prófgæslu þar sem nemendur hafa fullan aðgang að neti, forritum og bókum.
- Gagnalaus próf (e. closed-book) í læstu umhverfi Inspera ásamt prófgæslu.
- Blandað próf í læstu umhverfi Inspera en með aðgang að fyrirfram skilgreindum hjálpargögnum og -tólum undir eftirliti prófvarða
- Fjarpróf:
- Gagnalaus próf haldin á viðurkenntum fjarprófstöðum undir eftirliti prófvarða.
- Blandað próf í læstu umhverfi undir eftirliti prófvarða á viðurkenndum fjarprófstöðum.
- Munnleg próf - gegnum fjarfundabúnað eða í stofu.