Header Paragraph

Nýr kennsluvefur Aurora á Setbergsvefnum

Image

Settur hefur verið upp nýr Kennsluvefur Aurora háskólabandalagsins hér á vefnum Setberg.hi.is.

Á síðunni er að finna upplýsingar um allt það helsta sem snýr að Aurora kennslu en nýsköpun í kennslu er einn af hornsteinum Aurora samstarfsins. Alþjóðavæðing náms og kennslu ásamt spennandi kennsluaðferðum og verkfærum gefa kennurum HÍ aukin tækifæri til kennsluþróunar á vettvangi Aurora. Sameiginlegt Aurora nám, sem boðið er þvert á samstarfsskólana, eykur námsframboð og tækifæri nemenda en Aurora námskeið og örnám standa þar upp úr sem spennandi kostir fyrir nemendur til að öðlast alþjóðlega reynslu og þvermenningarlega hæfni. 

Sjón er sögu ríkari!