AI image
Hvenær
18. febrúar 2026
10:00 til 11:00
Hvar
Á netinu
Teams
Nánar

Kynning á gervigreindarspjallinu „hjálp með hæfniviðmiðin“

Í úttektum á Háskóla Íslands hefur verið bent á þörfina að efla gæði hæfniviðmiða við skólann, samræmi í gerð þeirra og sýnileg tengsl við námsmat. Hæfniviðmið eru hornsteinn námskeiðshönnunar, en það getur verið krefjandi að búa þau til.

Hjálp með hæfniviðmiðin er sérsniðið gervigreindarspjall í ChatGPT sem ætlað er að styðja kennara við að búa tilyfirfara og betrumbæta hæfniviðmið og tengja þau við námsmat. Spjallið er einnig hægt að nota fyrir annað tengt námi og kennslu. Farið verður í hvernig spjallið virkar og sýnd dæmi um notkun.

Spjallið byggir á flokkunarkerfi Bloomnotkun aðgerðasagnasamhæfðri námskrárgerð (Biggs) og SMART gæðaviðmiðum.

Kynningin er ætluð kennurum, fer fram á íslensku, á Teams og nauðsynlegt er að skrá sig. Lágmarksfjöldi þátttakenda er 5 manns.

Kristbjörg Olsen verkefnastjóri í Kennslumiðstöð HÍ kynnir.

Tengill á fundinn í Teams

Sjá upplýsingar í Uglu hér ásamt skráningarsíðu. 

 

Share