Opin samsipti og samvinna
-
Kennarar: Skýrið frá því í upphafi hvers vegna og hvernig gervigreind nýtist í námskeiðinu.
-
Nemendur: Kynnið ykkur skilmálana og veitið upplýst samþykki fyrir notkun tóla sem unnið er með. Myndum traust með því að vita hvar gögnin okkar lenda.
Persónuvernd er okkar allra
-
Kennarar: Veljið tól sem virða evrópskar persónuverndarreglur (GDPR - kynntu þér málið nánar hér að neðan).
-
Nemendur: Notið stofnanaaðgang frekar en persónulega reikninga þar sem það er hægt.
-
Gullna reglan: Setjið aldrei nöfn, einkunnir eða viðkvæmar upplýsingar inn í gervigreind. Passið upp á ykkur og aðra.
Heiðarleiki í vinnubrögðum
-
Kennarar: Setjið skýr leikreglur. Hvenær er gervigreind hjálpartæki (t.d. við rannsóknarvinnu) og hvenær á hún að hvíla (t.d. við lokaskrif)?
-
Nemendur: Verið opin með notkunina. Gervigreind getur kveikt neistann eða skipulagt hugsanir, en lokaverkið og skilningurinn á alltaf að vera ykkar.
Gagnrýnin hugsun
-
Kennarar: Hvetjið til umræðu um takmarkanir tækninnar, svo sem hlutdrægni og rangfærslur.
-
Nemendur: Treystið en herjið. Skoðið alltaf úttakið úr gervigreind með gagnrýnum augum – hún hefur ekki alltaf rétt fyrir sér og ber ekki ábyrgð á verkefninu þínu. Það gerir þú.
Öryggi og gæði
-
Kennarar: Prófið tólin sjálf áður en þið mælið með þeim til að tryggja að þau styðji raunverulega við námsmarkmiðin.
-
Nemendur: Veljið tól sem leyfa ykkur að slökkva á gagnasöfnun og þjálfun líkana þar sem það er í boði.
GDPR er evrópsk persónuverndarreglugerð sem tryggir að við eigum öll rétt á því að vita hvernig upplýsingum um okkur er safnað og þær notaðar. Í háskólasamfélagi skiptir þetta máli því gögnin okkar — allt frá nöfnum til verkefna og tölvupósta — njóta verndar samkvæmt þessum lögum. Markmiðið er að koma í veg fyrir að fyrirtæki misnoti gögnin okkar eða selji þau áfram án okkar vitundar. Þegar við notum gervigreind verðum við að vera viss um að þessi réttindi séu virt.
Sjá nánar: What is GDPR, the EU’s new data protection law?
Til að fylgja reglunum er best að nota opinber tól sem háskólinn hefur lagt blessun sína yfir, þar sem búið er að fara yfir öryggisskilmála þeirra. Mikilvægast er að slá aldrei inn viðkvæmar eða persónugreinanlegar upplýsingar, eins og kennitölur eða heilsufarsupplýsingar, í opin tól eins og ókeypis útgáfur af ChatGPT. Einnig er gott að athuga hvort hægt sé að slökkva á því að tólið noti spjallið þitt til að þjálfa líkanið sitt frekar. Með því að vera meðvituð um hvað við „fóðrum“ vélina lágmörkum við áhættuna á gagnasleka.
Sjá nánar: How to Ensure GDPR Compliance When Using AI
Mörg vinsæl gervigreindartól eru hönnuð í Bandaríkjunum, sem þýðir að gögnin okkar gætu ferðast út fyrir Evrópska efnahagssvæðið (EES). Í slíkum tilfellum þarf að tryggja að fyrirtækið noti viðurkennda samningsskilmála (SCC) sem lofa sömu vernd og gildir innan Evrópu. Ef tólið gefur loðin svör um hvar gögnin eru geymd eða hvernig þau eru varin, er ráðlegt að leita að evrópskum valkosti eða forðast að nota persónuleg gögn í því tóli. Öryggi gagna á aldrei að vera undirorpið þægindum eða nýjungagirni.
Sjá nánar: Standard contractual clauses for data transfers between EU and non-EU countries