Upptökur og fjarfundir hafa rutt sér mjög til rúms í háskólakennslu og HÍ styður við þá kennara sem vilja tileinka sér þess háttar vinnu með nokkrum verkfærum og kennslufræðilegri ráðgjöf. 

Nemendur horfa á upptöku í tölvu

Með því að veita nemendum aðgang að upptökum um námsefni fyrirfram, má t.d. nýta kennslustundir í verkefnavinnu eða umræður.

Kennari útskýrir glæru

Kennari getur sent kennslu út í beinu streymi en einnig haldið fjarfundi þar sem gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda í kennslustund. 

Hljóðnemi í hljóðklefa

Í Setbergi eru tveir vel búnir hljóðklefar sem kennarar geta bókað og búið þar til upptökur. 

Ráðherra streymir úr myndveri HÍ

Í Setbergi starfar hópur fagfólks í kvikmyndagerð sem sér um stærri kvikmyndaverkefni og streymi. 

Mikilvæg atriði við upptökur Mikilvæg atriði við upptökur

Þegar taka á upp kennsluefni eða senda út fjarfund er mikilvægt að tryggja að nemendur heyri það sem sagt er. 

Ef kennari notar búnað í kennslustofu og streymir / tekur upp með Panopto, er mikilvægt að mæta tímanlega og prófa búnaðinn áður en kennsla hefst. 

Þegar kennari notar fartölvu eru oftast innbyggður hljóðnemi sem getur dugað vel, en þá þarf að gæta þess að umhverfihljóð trufli ekki. 

Hægt er að nota hljóðnema sem eru innbyggðir í heyrnartól 

Hvaða hugbúnað sem þú notar þarftu að gæta eþss að réttur hljóðnemi sé valinn og að styrkurinn sé hæfilegur.  

 

Það sem þarf að hafa í huga þegar fyrirlestrar eru teknir upp að gera stuttar upptökur. Farðu í gegnum efnið þitt (Powerpoint glærur) eða annað efni og skiptu því upp í minni einingar. Reyndu að búa til upptökur sem eru að hámarki 20 mínútna langar. Betra ef þú getur gert þær styttri, t.d. 5-10 mínútur.

Notaðu lýsandi heiti og tölur til að nemendur viti í hvaða röð þeir eiga að horfa á upptökurnar.

Athugaðu að ef þú ert með 40 mínútna fyrirlestur í staðnámi þá er eðlilegt að sá fyrirlestur taki ekki meira en 20-30 mínútur í upptöku. Rannsóknir á áhorfi nemenda á upptökum á fyrirlestrum sýna að ef upptökurnar eru styttri þá horfa þeir frekar á allan fyrirlesturinn. Þessvegna er betra að hafa upptökurnar fleiri en styttri en hefðbundnir fyrirlestrar eru. Þú ert auk þess ekki með nemendur fyrir framan þig og því eru engar spurningar sem þarf að svara. Það er því eðlilegt að fyrirlestrar í upptökum séu styttri þó þeir nái yfir sama efnisinnihaldið.

Nemendur nota líka oft upptökur oft til að fletta upp í og horfa á ákveðna hluti aftur. Það flýtir því fyrir nemendum ef að fyrirlestrar á upptökum eru um afmarkað efni og nöfnin lýsandi.

Umsjónarmenn fasteigna veita þjónustu vegna tölvubúnaðar en þjónusta UTS felst í því að hægt er tilkynna vandamál í síma 525-5550 og fá fyrstu aðstoð. Einnig er hægt að senda beiðnir á netfangið help@hi.is. Ef starfsmenn þjónustunnar ná ekki að leysa vandamálið munu þeir kalla út tæknimann eða umsjónarmann fasteigna sem tekur við afgreiðslu beiðnarinnar.

Þjónusta við tölvubúnað nær til tölvu í kennslustofu og þess hugbúnaðar sem þar er notaður. Einnig er átt við skjávarpa og upptökubúnað.

Share