Á þessu námskeiði verður fjallað um hvernig nýta má tilvikamiðað nám til að hanna merkingarbær námsverkefni í námsumhverfi þar sem gervigreind er áberandi. Áhersla verður lögð á hvernig kennarar geta skapað verkefni og kennsluaðstæður sem hvetja til greiningar, umræðna og kerfishugsunar.
Þátttakendur vinna með eigið kennsluefni á meðan á námskeiðinu stendur.
Vinsamlegast komið með fartölvu og 1–2 dæmi (tilvik) úr ykkar fræðasviði. Á námskeiðinu munum við aðlaga þau að kennslu og þróa leiðir til að vinna með gervigreind á þann hátt að hún efli kennslu og nám hér og nú.
Umsjón með námskeiðinu hafa Tryggvi Thayer, aðjúnkt við Menntavísindasvið, og Beth Rogers, verkefnastjóri og gervigreindarsérfræðingur hjá Kennslumiðstöð.
Námskeiðið er ætlað kennurum sem hafa áhuga á hagnýtum leiðum til að nýta tilvikamiðað nám til að styðja við innihaldsríka verkefnavinnu nemenda í sínum námskeiðum.
Skráning er nauðsynleg.
Vinsamlegast athugið að lágmarksfjöldi þátttakenda er 5 manns.