TBL-vinnustofa verður haldin 8. desember kl. 13:00–15:00 í Suðurbergi, 3. hæð, Setbergi.
Team Based Learning (TBL) er skipulögð virk kennsluaðferð þar sem undirbúningur nemenda, einstaklings- og hópvinna og markviss verkefnavinna eru samþætt til að stuðla að virkri þátttöku og námi.
Markmið vinnustofunnar er að þátttakendur fái hagnýta innsýn og reynslu af því hvernig TBL er byggt upp og hvernig hægt er að innleiða aðferðina í eigin námskeið.
Fyrir vinnustofuna fá þátttakendur aðgang að stuttum upptökum þar sem farið verður yfir hvað TBL er, hvernig aðferðin styður við nám nemenda og helstu kosti og áskoranir við notkun hennar. Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi horft á upptökurnar áður en þeir mæta í vinnustofuna.
Í vinnustofunni verður síðan unnið verklega með TBL. Þátttakendur fá fyrst að upplifa hluta af TBL-ferlinu sjálfir, meðal annars með að svara spurningum úr undirbúningi fyrir vinnustofuna, áður en þeir vinna að því að hanna TBL-lotu sem hægt er að nýta eða þróa áfram fyrir eigið námskeið. Áhersla verður á að þátttakendur fari úr vinnustofunni með skýra hugmynd um hvernig þeir geti stigið fyrstu skrefin í notkun TBL í eigin kennslu.
Vinnustofan verður leidd af Dr. Berglindi Evu Benediktsdóttur, dósent, og Dr. Helgu Helgadóttur, lektor, við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands.