Hvenær
13. ágúst 2026
13:30 til 15:00
Hvar
Setberg
Suðurberg, 3. hæð
Nánar

Á þessari hagnýtu vinnustofu fá kennarar tækifæri til að vinna með eigin kennsluefni. Fjallað verður um einföld skref sem kennarar geta tekið strax til að skýra reglur í kennsluáætlunum um notkun gervigreindar í námskeiðum og bæta verkefnalýsingar og námsmat.

Þátttakendur fá aðgang að hagnýtum upplýsingum um notkun gervigreindar við Háskóla Íslands, um notkun gervigreindar í kennslu, leiðbeiningar og tilbúin sniðmát fyrir kennsluefni. Hægt er að aðlaga sniðmátin að ólíkum námskeiðum, kennsluaðferðum og fræðasviðum.

Í seinni hluta vinnustofunnar vinna þátttakendur með eigið efni, til dæmis kennsluáætlun, verkefnalýsingar eða annað kennsluefni sem þeir vilja þróa áfram.

Við mælum með að þátttakendur komi með fartölvu og, ef við á, kennsluáætlun, verkefnalýsingu eða annað kennsluefni til að vinna með. Markmiðið er að þátttakendur fari af vinnustofunni með skýrari texta og hagnýt sniðmát sem þeir geta nýtt strax í undirbúningi námskeiða komandi skólaárs.

Vinnustofunni stýra verkefnastjórarnir Harpa Dögg og Beth Rogers frá Kennslumiðstöð. Þær sérhæfa sig báðar í gervigreind og kennslufræði. Vinnustofan fer fram á ensku og er ætluð kennurum sem vilja fá hagnýtar leiðbeiningar og efni sem þeir geta nýtt strax í eigin kennslu.

Skráning er nauðsynleg.

Athugið að vinnustofan verður aðeins haldin ef að lágmarki fimm þátttakendur skrá sig.

Skráning á Uglu. 

Share