
Sigurður Ingi Árnason tók við sem nýr Prófstjóri Háskóla Íslands 1.apríl 2024. Hann tók við starfinu af Hreini Pálssyni fyrrum prófstjóra sem lét ef störfum í lok mars eftir langan og farsælan starfsferil við Háskóla Íslands.
Kennslusvið óskar Sigurði Inga innilega til hamingju með nýja starfið og hlakkar til áframhaldandi ánægjulegs samstarfs.
Á sama tíma viljum við þakka Hreini fyrir ánægjulegt samstarf síðustu árin og óskum honum alls hins besta á nýjum afslappandi vettvangi.