logo kennsluakademían
Hvenær
20. nóvember 2026
09:00 til 17:00
Hvar
Saga
Stofur S-261, S-262 og S-281
Nánar

Ráðstefna og inntökuviðburður Kennsluakademíu opinberu háskólanna 2026

Ráðstefna um háskólakennslu
Þema: Nám og kennsla í breyttri heimsmynd

Kennsluakademía opinberu háskólanna býður til árlegrar ráðstefnu föstudaginn 20. nóvember 2026, kl. 9:00–17:00, á Sögu.

Ráðstefnan er ætluð öllum þeim sem láta sig kennslu á háskólastigi varða: kennurum, nemendum og stjórnendum. Gestgjafar ráðstefnunnar í ár eru meðlimir Kennsluakademíunnar á Menntavísindasviði Háskóla Íslands.

Boðið verður upp á kaffi og te og léttan hádegisverð.

Á ráðstefnunni verður sjónum beint að því hvernig hröð tækniþróun og samfélagslegar breytingar móta háskólastarf, nám og kennslu og hvernig háskólar geta hlúð að mannlega þættinum með því að stuðla að öflugu, skapandi og styðjandi námsumhverfi með virkri þátttöku nemenda.

Jafnframt verður rætt hvert „loforð samfélagsins um háskólamenntun“ sé í breyttum heimi og hvernig háskólamenntun geti búið fólk undir framtíðina, bæði til þátttöku í samfélaginu og fyrir síbreytilegan vinnumarkað.

Hvernig getur háskólasamfélagið mætt þessum öru samfélagslegu og tæknilegu breytingum og nýtt þau tækifæri sem þeim fylgja, hvort sem litið er til hlutverks háskólans, skipulags náms, kennsluhátta eða háskólasamfélagsins í heild?

Í lok dags, kl. 16:00, verða nýir meðlimir teknir inn í Kennsluakademíuna og fá afhent viðurkenningarskjal. Sá viðburður markar formleg lok ráðstefnunnar.

Þátttaka er ókeypis og öllum opin, en nauðsynlegt er að skrá sig vegna skipulagningar. 

Hér má nálgast dagskrá og skráningu.

Við hvetjum alla sem láta sig háskólakennslu varða til að mæta og taka þátt í fróðlegri ráðstefnu.

Share