Claude__HI-kenn
Hvenær
19. febrúar 2026
13:00 til 15:00
Hvar
Á netinu
Háskóli Íslands - Saga - Stofa: S-261 (2. hæð)

Gervigreind í Háskóla Íslands: Staða, viðhorf og framtíðarhorfur

Tímasetning : 19. febrúar frá 13:00–15:00
Staðsetning: Saga, stofa S-261(Einnig verður í boði að taka þátt í streymi)

Gervigreind er að umbreyta landslagi háskólamenntunar með afgerandi hætti. En hver er raunveruleg upplifun þeirra sem standa í brúnni?

Á þessari málstofu verða kynntar niðurstöður umfangsmikillar könnunar sem lögð var fyrir kennara við Háskóla Íslands sumar og haustið 2025. Við rýnum í gögnin, hlustum á raddir kennara og ræðum hvernig háskólinn getur brugðist við.

Dagskrá 

  1. Gervigreindarstefna HÍ, nýr leiðbeiningarvefur og framkvæmd rannsóknar​
    - María Kristín Bjarnadóttir​
  2. Spunagreind í kennslu: Notkun og áskoranir​
    - Sigurbjörg Jóhannesdóttir​
  3. Viðhorf kennara til notkunar gervigreindar​
    - Ásta Bryndís Schram ​
  4. Raddir kennara: Greining á áskorunum, misnotkun og brýnustu úrlausnarefnum​
    - Hafsteinn Einarsson​
  5. Stuðningur og stefna – Hvað getur HÍ gert? ​
    Bethany Louise Rogers ​
  6. Pallborðsumræður​

Málstofan er kjörinn vettvangur fyrir alla sem láta sig háskólakennslu, tækniþróun og framtíð menntunar varða.

Umsjónarmenn málstofunnar og rannsakendur eru þau Ásta Bryndís Schram, Bethany Louise Rogers, Hafsteinn Einarsson, María Kristín Bjarnadóttir og Sigurbjörg Jóhannesdóttir.

Hlökkum til að sjá ykkur í Sögu!

Sjá upplýsingar í Uglu hér ásamt skráningarsíðu. 

Zoom streymi: https://eu01web.zoom.us/j/3545254000?pwd=8idKAa43lKeeq69ZmZZFGDbvZIa26t.1&omn=69673796109
 

 

Share