LOUIS (Learning Outcomes in University for Impact on Society) er verkfæri til að efla þverfræðilega hæfni nemenda. Með LOUIS fá kennarar verkfæri til að setja hæfniviðmið námskeiða í orð**, sem auðveldar þeim** að ræða við nemendur sína um hvaða þverfræðilega hæfni á við hverju sinni.

LOUIS-verkfærið umbreytir þverfræðilegri hæfni í áþreifanlegan námsárangur. LOUIS skilgreinir yfirhæfni og undirhæfni og býður upp á tungutak og orðfæri til að útskýra fyrir nemendum framfarir þeirra**, allt frá einfaldri til flókinnar færni**. LOUIS er stuðningsverkfæri fyrir kennara við að samþætta almenna hæfni inn í kennslu sína með skilgreiningum og hugtökum um þverfræðilega hæfni.

Virði fyrir nemendur
LOUIS hjálpar til við að bæta skilning nemenda á því hvers er ætlast til af þeim í námi og að skilja gildi menntunar þvert á fræðigreinar. LOUIS er ekki síður mikilvægt verkfæri fyrir nemendur til að skilja þá hæfni sem þeir taka með sér úr námskeiði og námi yfirleitt.

Virði fyrir kennara
LOUIS hjálpar kennurum að útskýra þverfræðilega hæfni fyrir nemendum, hvers er ætlast til af þeim og hvernig þeir standa sig. LOUIS hjálpar kennurum við að samþætta þá þverfræðilegu hæfni sem þeir telja mikilvæga inn í námskeið og útskýra fyrir nemendum gildi hennar.

LOUIS: Samfélagsleg þátttaka
LOUIS: Skapandi hugsun
LOUIS: Gagnrýnin hugsun
LOUIS: Siðferðilegur rökstuðningur
LOUIS: Hnattrænt nám
LOUIS: Upplýsingalæsi
LOUIS: Rannsókn og læsi
LOUIS: Heildrænt nám
LOUIS: Þvermenningarlegt læsi
LOUIS: Grunnstoðir símenntunar
LOUIS: Munnleg samskipti
LOUIS: Úrlausn vandamála
LOUIS: Læsi á megindleg gögn
LOUIS: Lestur
LOUIS: Teymisvinna
LOUIS: Skrifleg samskipti
Share