Hagnýt vinnustofa fyrir kennaraViltu efla hæfni þína til að kenna í fjölbreyttu háskólasamfélagi, stuðla að jöfnuði og skapa öruggt og inngildandi námsumhverfi?
Í þessari hagnýtu vinnustofu kynnum við hugmyndafræðina um aðgengi og jafnrétti í námi í víðu samhengi. Við skoðum hvernig kennarar geta aukið meðvitund sína og þróað kennslufærni.
Lykiláherslur vinnustofunnar:
- Rýnum í áþreifanlegt og stafrænt aðgengi
- Að útvíkka hugtakið aðgengi til að ná til allra þátta náms og kennslu
- Vinnum með hugtakið: Viðeigandi aðlögun (e. reasonable accommodation)
- Skoðum jafnræðisregluna og samþættingu hennar í skipulag kennslu
- Rannsökum hvernig aðgengi birtist á meðvitaðan og ómeðvitaðan hátt í háskólastarfi
- Ígrundum leiðir sem hægt er að fara til að kenna fjölbreyttum nemendahópum
Í þessari vinnustofu verður unnið með hagnýt raundæmi þar sem kennarar kynnast og fá hugmyndir til að mæta þörfum fjölbreyttra nemendahópa, þar á meðal fatlaðra nemenda og nemenda með ýmsar greiningar og námslegar áskoranir.
Vinnulag og verkefni:
- Raunveruleg dæmi um fjölbreytta nemendur
- Hagnýt raundæmi til að efla kennslufærni í anda inngildandi hugmyndafræði
- Æfingar sem hvetja til uppbyggilegrar samræðu og efla skilning á fjölbreytileika
- Lærum hvernig má gera fjölbreytileika að styrk í kennsluháttum
- Skoðum hvernig má samþætta ólíkar nálganir og sjónarhorn í lausnamiðaðri kennslu
Vinnustofan er samstarfsverkefni Kennslumiðstöðvar og Nemendaráðgjafar við Háskóla Íslands og fer fram í Suðurbergi, 3. hæð í Setbergi kl. 12:00. Velkomið að taka með ykkur hádegismatinn og við eigum kaffi og kruðerí.
Umsjón:Aleksandra Kojic og Harpa Dögg Fríðudóttir, verkefnisstjórar hjá Kennslumiðstöð og Ástríður Margrét Eymundsdóttir, Hrafnhildur V. Kjartansdóttir og María Ósk Þorvarðardóttir, náms- og starfsráðgjafar Háskóla Íslands
Skráning er nauðsynleg fyrir þennan viðburð.
Vinsamlegast athugið að lágmarksfjöldi þátttakenda er 5 manns.