Kennsludagar 17.-21. mars 2025
Kennsluakademía opinberu háskólanna í samstarfi við Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri halda Kennsludaga vikuna 17.-21. mars næstkomandi.
Þetta er í annað sinn sem dagarnir eru haldnir en markmið þeirra er að efla samtal um mikilvægi samskipta, kennslu og kennsluþróun á háskólastigi.
Þema daganna í ár er sjálfbærni og mikilvægi kennsluauðs í háskólastarfi og hvernig við getum hlúð að kennslunni. Hvernig eflum við kennsluþróun og samskipti á milli kennara, starfsfólks og nemenda.
Margvíslegir og fjölbreyttir viðburðir verða í boði á borð við vinnustofu, fyrirlestra, kennsluheimsóknir og kennslukaffi í samstarfi við Stúdentaráð.
Kynnið ykkur dagskrá Kennsludaga á ytri vef HÍ og á heimasíðu Kennsluakademíunnar.